Yfir 400 milljóna króna tap af rekstri Hörpu í ár 4. ágúst 2012 08:00 Tekjur af ráðstefnuhaldi í Hörpu eru langt undir áætlunum, og virðist sá hluti rekstrarins fara hægt af stað. Fréttablaðið/Vilhelm
Hallarekstur á Hörpu er alvarlegur og ekki útilokað að tapið lendi á skattgreiðendum segir menntamálaráðherra. Stór hluti tapsins er til kominn vegna vanáætlaðra fasteignagjalda. Ráðstefnuhaldið fer hægt í gang. Um 407 milljóna króna tap verður af rekstri tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu á þessu ári miðað við óbreyttar forsendur. Þetta kemur fram í niðurstöðum úttektar sem ráðgjafafyrirtækið KPMG gerði á rekstri og skipulagi Hörpu fyrir eigendurna; ríkið og Reykjavíkurborg. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segir hallareksturinn alvarlegan. Hún útilokar ekki að tapið lendi að hluta á skattgreiðendum, þó reynt verði til þrautar að láta reksturinn bera sig. Katrín segir hallarekstur Hörpu skýrast af því að áætlanir hafi ekki gengið eftir. Um helmingurinn af tapi ársins er vegna vanáætlunar á fasteignagjöldum, en aðrir þættir vega einnig þungt, segir Katrín. Til dæmis sé rekstur á húsinu hærri en áætlað var, og tekjur af veitingasölu og bílastæðahúsi undir væntingum. Tekjur af tónlistarflutningi og menningarstarfsemi í húsinu hefur verið samkvæmt áætlun á árinu. Alls hafa 250 þúsund gestir sótt 367 tónleika og menningarviðburði í húsinu. Tekjur af ráðstefnuhaldi eru hins vegar langt undir áætlun. „Ég held að það sé ekki ólíklegt að við getum séð fram á meiri tekjur af ráðstefnuhaldi í framtíðinni. Sá bransi virðist vera skipulagður mjög langt fram í tímann, núna eru að koma inn bókanir fyrir árin 2016 og 2017. Svo við getum átt von á því að það gangi betur,“ segir Katrín. Halldór Guðmundsson tók við starfi forstjóra Hörpu í byrjun ágúst. Hans fyrsta verkefni verður að vinna fimm ára rekstraráætlun fyrir húsið, og þar með leita leiða til að spara í rekstri og auka tekjur, segir Katrín. Reiknað er með að ný rekstraráætlun liggi fyrir í haust. Á sama tíma stendur til að kynna nýja eigendastefnu ríkis og Reykjavíkurborgar þar sem sett verða fram markmið eigendanna með rekstri Hörpu. Einnig stendur til að einfalda mjög fyrirkomulag rekstursins. Þegar einkaaðilar hófu undirbúning að byggingu og rekstri hússins stofnuðu þeir átta félög til að halda utan um rekstur mismunandi eininga. Nú stendur til að færa reksturinn í eitt félag í eigu ríkisins og Reykjavíkurborgar. Katrín segir að með því muni nást ákveðin hagræðing, en mestu muni um aukið gagnsæi og betri stjórnarhætti eftir að reksturinn verður kominn í eitt félag. brjann@frettabladid.is
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Sjá meira