Sameinast þarf um afnámsáætlun hafta 17. maí 2012 08:30 Nordica í gær Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, og Árni Páll Árnason þingmaður fluttu erindi um afnám gjaldeyrishafta. Fréttablaðið/GVA
Stjórnmálaflokkarnir auk aðila vinnumarkaðarins verða að ná breiðri samstöðu um afnám gjaldeyrishafta. Eftir þessu kölluðu bæði Árni Páll Árnason og Ólöf Nordal, þingmenn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks, á fundi Samtaka atvinnulífsins um afnám hafta undir yfirskriftinni Brýnasta hagsmunamál Íslendinga, á Hilton Reykjavik Nordica í gær. Árni Páll sagði stóra vandann vera að ekki væri einhugur um leiðina út úr höftunum og minnti á að slíkt stefnuleysi hefði á síðustu öld valdið 60 ára haftatímabili. Því hvatti hann til sameiningar um afnám haftanna og sagði mikilvægt að ekki mætti blása til pólitísks hanaslags vegna ófyrirséðra afleiðinga afnámsferlisins. Þá lagði hann áherslu á að verja þyrfti heimilin fyrir mögulegu tjóni vegna afnámsins. Loks kallaði Árni eftir því að allir flokkar myndu skuldbinda sig til að standa við markmið um jöfnuð í ríkisfjármálum ekki seinna en 2014 og að Maastricht-skilyrðunum yrði náð sem allra fyrst til að búa í haginn fyrir afnám hafta. Ólöf tók í sama streng og sagði það skyldu Alþingis að ná breiðri samstöðu um afnám haftanna. Hún sagði litla umræðu hafa farið fram um skaðsemi þeirra á þingi sem væri skrýtið þar sem ekkert eitt mál væri jafn mikilvægt nú um stundir. Hún tók einnig undir með Árna að verja þyrfti heimilin fyrir mögulegu gengisfalli krónunnar vegna afnámsins en velti upp þeirri spurningu hvort veikburða ríkisstjórnin væri fær um þessi verkefni.- mþl
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Sjá meira