Matarolía af ökrum íslenskra bænda Kristján Már Unnarsson skrifar 25. maí 2012 21:45
Íslensk matarolía af akrinum er það nýjasta sem íslenskir bændur bjóða landsmönnum en þetta er afurð repjuræktar undir Eyjafjöllum. Repjuakurinn hjá Ólafi Eggertssyni, bónda á Þorvaldseyri, þekkist úr á gula litnum. Repjan var þegar farin að blómstra í síðustu viku en henni var sáð í fyrrasumar. Ólafur segir í viðtali í fréttum Stöðvar 2 að þetta líti mjög vel út, þrátt fyrir kalt vor, og repjan sé byrjuð að blómgast. Í vetrarbyrjun 2010 vakti það landsathygli, fáum mánuðum eftir Eyjafjallajökulsgosið, þegar Ólafur hellti repjuolíu á gamlan traktor og ók af stað og sýndi þannig hvernig Íslendingar geta notað landið til að rækta sína eigin olíu. En Ólafur sér einnig önnur not fyrir repjuolíuna og það er að tappa henni á flöskur og selja hana sem matarolíu. Hann segir að hún hafi reynst góð sem matarolía, og þar sem þetta sé enn lítil framleiðsla fáist þannig mest verðmæti fyrir olíuna. Ólafur vonast þó til að geta einnig notað olíuna sem eldsneyti í framtíðinni og segir Íslendinga eiga nóg land til repjuræktar. Hann minnir á að þetta er tilraunaverkefni og víða um land eru menn að prófa sig áfram með ýmis afbrigði. Ef vel tekst til, og góð afbrigði fáist, komi að því að unnt verði að nota olíuna á vélar og hann sér fram á það að býli eins og Þorvaldseyri geti annað sinni olíuþörf með eigin framleiðslu.
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira