Enn óvissa með þáttöku Ingimundar Henry Birgir Gunnarsson í Malmö skrifar 27. janúar 2011 06:00 Ingimundur lenti illa á hnénu í upphafi seinni hálfleiks í leiknum gegn Spáni á mánudaginn eins og sjá má á þessari mynd. Hann missti af leiknum gegn Frökkum í fyrrakvöld og óvíst er hvort hann verður með gegn Króatíu á morgun. Fréttablaðið/Valli
Strákarnir okkar hafa mátt ferðast mikið á HM í Svíþjóð og þeir fóru í sína síðustu löngu rútuferð í gær. Þá var setið í rútu í fjóra klukkutíma frá Jönköping til Malmö. Leikur Íslands og Króatíu fer fram í Malmö en ekki Kristianstad en það hefði kallað á enn meiri ferðalög. Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, sagði alla í hópnum fegna yfir því þar sem menn væru búnir að fá nóg af ferðalögum í bili. Eftir langt og strangt mót eru leikmenn orðnir ansi lemstraðir og sumir verr farnir en aðrir. Allir leikmenn íslenska liðsins fyrir utan Ingimund Ingimundarson ættu þó að vera klárir í slaginn á morgun. „Svona mót tekur sinn toll af mönnum og það er hnjask hér og þar. Ég hef þó fulla trú á því að allir spili en það skýrist ekki strax hvernig fer með Ingimund. Hann er enn slæmur og fékk mikinn verk við það eitt að reyna að stöðva lyftu sem var að lokast. Hann verður áfram í meðhöndlun og við sjáum svo til,“ sagði Einar við Fréttablaðið í gær. Ólafur Stefánsson hefur einnig verið slæmur frá fyrsta leik. Alexander Petersson meiddist næst og loks Snorri Steinn Guðjónsson. Þeir ættu þó að geta spilað þó svo að það muni reynast þeim erfitt. Oddur Gretarsson var kallaður í íslenska landsliðið fyrir leikinn gegn Frakklandi í fyrrakvöld og er það fyrsta breytingin sem Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari gerir á leikmannahópnum eftir að mótið hófst. Reglurnar leyfa honum þó að gera eina breytingu til viðbótar og því gæti hann sett Ingimund á skýrslu á ný fyrir morgundaginn. Leikurinn við Króatíu mun skipta talsvert miklu máli því liðið sem vinnur leikinn fær „þægilegri“ riðil í undankeppni Ólympíuleikanna 2012. Einar segir því menn vera staðráðna í að selja sig dýrt gegn Króatíu. „Þessi hópur stefnir á að komast til London og menn eru vel meðvitaðir um mikilvægi leiksins. Ég efast því ekkert um að strákarnir mæti einbeittir og grimmir til leiks,“ sagði Einar Þorvarðarson. Viðureign Íslands og Króatíu hefst klukkan 19.30 á föstudagskvöldið en fyrr um daginn fer fram í Malmö undanúrslitaleikur Svíþjóðar og Frakklands. Úrslitaleikurinn, sem og leikurinn um bronsið, fer svo fram í Malmö á sunnudag.
Mest lesið Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Íslenski boltinn Fámáll um orðrómana Íslenski boltinn „Sýnir hvað þau eru þakklát fyrir það sem ég gaf klúbbnum“ Fótbolti Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Handbolti Leedsarar léku sér að Newcastle Enski boltinn Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin Enski boltinn „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Sjá meira