Ólafur með 100 stórmótsleiki Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. janúar 2011 07:00 Ólafur á ótrúlegan landsliðsferil að baki. Fréttablaðið/Valli
Ólafur Stefánsson, fyrirliði íslenska handboltalandsliðsins, hefur nú náð því að spila hundrað landsleiki fyrir Íslands hönd á stórmótum, sem er gríðarlegt afrek enda ná því ekki margir að spila hundrað landsleiki á ferlinum, hvað þá á stórmótum eins og HM, EM eða Ólympíuleikum. Landsliðsfyrirliðinn þurfti reyndar ekki að hafa mikið fyrir hlutunum í hundraðasta leiknum eins og í mörgum hinna 99 leikja sem fóru þar á undan. Ólafur hvíldi allan leikinn á móti Frökkum en var á skýrslu og fær því þann landsleik skráðan á sig. Ólafur er nú á sínu fimmtánda stórmóti með íslenska landsliðinu en hann hefur tekið þátt í sjö heimsmeistarakeppnum (53 leikir, 222 mörk), sex Evrópumótum (33 leikir, 184 mörk) og tvennum Ólympíuleikum (14 leikir, 72 mörk). Það eru að verða liðin sextán ár síðan hann tók þátt í því fyrsta en það var HM á Íslandi í maímánuði 1995. Ólafur skoraði þá 11 mörk í sjö leikjum íslenska liðsins en hefur síðan bætt við 467 mörkum á stórmótum. Ólafur hefur skorað 4,8 mörk að meðaltali í leik í þessum hundrað stórmótaleikjum sínum en hann hefur skorað fimm mörk eða fleiri í 47 leikjanna, skorað átta mörk eða fleiri í átján leikum og alls brotið tíu marka múrinn sjö sinnum. Ólafur hefur spilað flesta leikina undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar en leikurinn á móti Króatíu verður fimmtugasti stórmótaleikur hans undir stjórn Guðmundar. Hér fyrir neðan má finna staðreyndir um hundrað stórmótaleiki Ólafs. Þátttaka Ólafs á stórmótumFjöldi skoraðra marka í leik: 10 mörk skoruð eða meira - 7 leikir 8-9 mörk skoruð - 11 leikir 6-7 mörk skoruð - 16 leikir 1-5 mörk skoruð - 60 leikir Leikir án þess að skora - 6 leikirÞátttaka eftir stórmótum: HM 53 leikir/222 mörk (4,2 í leik) EM 33 leikir/184 mörk (5,6 í leik) ÓL 14 leikir/72 mörk (5,1 í leik) Samtals 100 leikir/478 mörk (4,8 í leik)
Mest lesið Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Íslenski boltinn Fámáll um orðrómana Íslenski boltinn „Sýnir hvað þau eru þakklát fyrir það sem ég gaf klúbbnum“ Fótbolti Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Handbolti Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin Enski boltinn Leedsarar léku sér að Newcastle Enski boltinn „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Sjá meira