HM 2011: Tólf lið af sextán komin áfram Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. desember 2011 09:30 Leikmenn Úrúgvæ fagna í gær eftir sigur á Argentínu. Úrúgvæ er eitt af slökustu liðum keppninnar en á enn möguleika á sæti í 16-liða úrslitum HM í Brasilíu. Nordic Photos / AFP
Þó svo að enn eigi eftir að spila lokaumferð riðlakeppninnar á HM í Brasilíu hafa nú þegar tólf lönd tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum keppninnar. 16-liða úrslitin fara fram á sunnudag og mánudag og á Ísland góðan möguleika á að vera eitt þeirra liða sem keppir þar en stelpunum dugir jafntefli gegn Kína í kvöld til að komast áfram. Ef Angóla vinnur Þýskaland klukkan 17.00 í dag er Ísland komið áfram, sama hvernig leikurinn við Kína fer síðar í kvöld. Leikið var í C- og D-riðlum í gær en Vísir fer hér yfir stöðuna í öllum riðlum fyrir lokaumferðina í dag.Lið sem eru komin áfram:A-riðill: Noregur og Svarfjallaland.B-riðill: Rússland (1. sæti), Spánn (2. sæti), Holland og Suður-Kórea.C-riðill: Brasilía (1. sæti), Frakkland og Rúmenía.D-riðill: Danmörk, Svíþjóð og Króatía.Lið sem eiga enn möguleika:A-riðill: Angóla, Þýskaland og Ísland.B-riðill: Engin.C-riðill: Japan og Túnis.D-riðill: Fílabeinsströndin og Úrúgvæ.Sjá úrslit og stöðuna í riðlunum.A-riðill: Noregur og Svartfjallaland eru þegar komin áfram en mætast í dag í hreinum úrslitaleik um efsta sæti riðilsins. Jafntefli dugir Noregi til að fara áfram sem sigurvegari riðilsins. Angóla, Þýskaland og Ísland eru svo öll með fjögur stig og ljóst að eitt þeirra liða mun sitja eftir með sárt ennið eftir leiki dagsins. Angóla og Þýskaland mætast innbyrðis sem er gott fyrir Ísland sem mætir Kína í kvöld. Kína er án stiga í riðlinum en hefur sýnt að það getur vel staðið í sínum andstæðingum.B-riðill: Rússland hefur þegar tryggt sér efsta sæti riðilsins og Spánn annað sætið. Holland og Suður-Kórea mætast svo í úrslitaleik um þriðja sætið í dag en bæði lið eru þó örugg áfram í 16-liða úrslitin. Kasakstan endar í fimmta sæti riðilsins og Ástralía því neðsta. Leikur Holland og Suður-Kóreu er því sá eini sem hefur einhverja þýðingu í dag.C-riðill: Heimamenn í Brasilíu hafa komið skemmtilega á óvart með frábærri frammistöðu og glæsilegum sigri á Frökkum í fyrradag. Þeim sigri fylgdu þær eftir með góðum sigri á Rúmeníu í gær en með honum tryggðu Brassar sér sigurinn í riðlinum. Frakkland (6 stig) og Rúmenía (5 stig) mætast svo í hreinum úrslitaleik um annað sætið í dag. Japan fór langleiðina með að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitunum með sigri á Túnis í gær, 32-31, og dugir stig gegn Kúbverjum í dag til að koma sér áfram. Sannarlega glæsilegur árangur hjá Japönum sem var í neðsta styrkleikaflokki þegar dregið var í riðla, rétt eins og íslenska liðið.D-riðill: Danir eru með fullt hús stiga, átta talsins, í D-riðli en eiga leik gegn Svíum í kvöld. Svíþjóð og Króatía eru bæði með sex stig en liðin mættust í gær og höfðu þá Króatar betur í hörkuleik, 27-26. Öll þrjú lið eru komin áfram í 16-liða úrslitin. Annað hvort Fílabeinsströndin eða Úrúgvæ fylgja svo með í 16-liða úrslitin en liðin eru bæði með tvö stig og mætast í kvöld. Fílabeinsströndin er með miklu betra markahlutfall og dugir því jafntefli í kvöld.
Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Handbolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira