HM í Svíþjóð hefst í kvöld Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. janúar 2011 13:45 Frá æfnginu sænska landsliðsins í Gautaborg í morgun. Hér eru þeir Kim Andersson og Mattias Andersson að hita upp í fótbolta. Nordic Photos / AFP
Heimsmeistarakeppnin í handbolta hefst í Svíþjóð í kvöld en heimamenn mæta Síle í opnunarleik keppninnar. Svíar ætla sér sjálfsagt stóra hluti á HM í heimalandinu en þeir urðu Evrópumeistarar síðast þegar stórmót var haldið í Svíþjóð, árið 2002. HM var einnig haldið þar í landi árið 1993 en þá urðu Svíar í þriðja sæti. En þeir hafa ekki unnið til verðlauna á stórmóti síðan 2002 og á nú ný kynslóð sænskra handknattleiksmanna að leika eftir afrek gullaldarára sænska landsliðsins. Landsliðið er nú þjálfað af gömlum kempum sem eru Íslendingum vel kunnugir, Staffan „faxi" Olsson og Ola Lindgren. Svíar eru með gríðarlega sterka varnarmenn, þá Magnus Jernemyr og Tobias Karlsson og mun mikið mæða á þeim. Svíar hafa svo alltaf átt sterka markverði og er líklegt að Mattias Andersson verði fyrsti kostur í marki þeirra nú. Jonas Larholm er þó veikur eftir því sem fram kemur í sænskum fjölmiðlum og mun því ekki spila með Svíum í kvöld. Síle mun í kvöld þreyta frumraun sína á HM í handbolta og verður að teljast afar ólíklegt að leikurinn í kvöld verði spennandi. Þeirra þekkasti leikmaður er leikstjórnandinn Marco Antonio Oneto sem spilar með stórliði Barcelona. Leikurinn hefst klukkan 19.15 í kvöld og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Umfjöllun hefst klukkan 17.30 með upphitunarþætti og svo tekur Þosteinn J. á móti gestum í myndveri klukkan 18.15 og svo aftur eftir leik.
Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira