Björgvin fer á kostum eftir hlé Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. janúar 2011 08:00 Sverre Jakobsson fagnar íslenska markverðinum í leikslok gegn Noregi. Fréttablaðið/Valli
Íslenska handboltalandsliðið tryggði sér sigur í leikjunum á móti Austurríki og Noregi með frábærri frammistöðu í seinni hálfleik. Íslenska liðið vann seinni hálfleik þessara tveggja leikja samtals með fimmtán marka mun, skoraði 32 mörk á móti aðeins 17. Vörnin var frábær og í markinu var Björgvin Páll Gústavsson svo í svaka stuði. Björgvin hafði aðeins varið 2 af 12 skotum í fyrri hálfleiknum á móti Austurríki (17 prósent) en mætti eins og nýr maður í seinni hálfleikinn þar sem hann varði 14 af 21 skoti Austurríkismanna sem gerir 67 prósenta markvörslu. Björgvin hélt uppteknum hætti í leiknum á móti Noregi. Hann varði vel í fyrri hálfleik, 9 af 21 skoti (43 prósent) en fór síðan í miklu meira stuð í seinni hálfleiknum þar sem hann varði 12 af 22 skotum Norðmanna sem gerir 55 prósenta markvörslu. Björgvin hefur því varið 61 prósent skota sem hafa komið á hann í seinni hálfleik í síðustu tveimur leikjum (26 af 43). Björgvin tók 68 prósent langskota í þessum tveimur hálfleikjum (15 af 22) og varði 83 prósent skota úr hornum (83 prósent). Fimm af þeim sextán mörkum sem hann fékk á sig komu úr hraðaupphlaupum eða úr vítum sem er ekki hægt að ætlast til að markvörður verji nema í einstökum tilfellum. Það hefur annars verið mikill stöðugleiki í markvörslu Björgvins á HM en hann hefur varið yfir 48% prósent skota eða meira í undanförnum þremur leikjum. Björgvin hefur alls varið 73 skot í leikjunum fimm eða 14,6 að meðaltali en hann hefur tekið 43,5 prósent skota sem hafa komið á hann.Björgvin Páll í miklu stuði Seinni hálfleikur á móti Austurríki Varið frá skyttum: 90 prósent (9 af 10) Varið úr hornum : 75 prósent (3 af 4) Varið af línu: 100 prósent (2 af 2)Samtals:: 67 prósent (14 af 21) Seinni hálfleikur á móti Noregi Varið frá skyttum: 50 prósent (6 af 12) Varið úr hornum : 100 prósent (2 af 2) Varið af línu: 43 prósent (3 af 7)Samtals:: 55 prósent (12 af 22)Samantekt: Varið frá skyttum: 68 prósent (15 af 22) Varið úr hornum : 83 prósent (5 af 6) Varið af línu: 56 prósent (5 af 9)Samtals:: 61 prósent (26 af 43)
Mest lesið Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Fótbolti Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fótbolti Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Enski boltinn Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fótbolti Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Fótbolti Varði mark Víðis og Sindra en er mættur á HM Fótbolti Ætlar að sýna öllum heiminum hvað systir hans heitin sá í honum Fótbolti Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Handbolti Fleiri fréttir Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Sjá meira