Frakkar heimsmeistarar í fjórða sinn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. janúar 2011 18:00 Thierry Omeyer, Jerome Fernandez og Nikola Karabatic áttu stóran þátt í sigri Frakka í dag. Hér fagna þeir eftir leikinn. Nordic Photos / AFP
Frakkland varð í dag heimsmeistari í handbolta eftir sigur á Dönum, 37-35, í framlengdum úrslitaleik í Malmö. Leikurinn var æsispennandi og þá sérstaklega síðustu tíu mínútur leiksins og framlengingin. Frakkar voru með frumkvæðið lengst af og voru með þriggja marka forystu í hálfleik, 15-12. Markaskorun dreifðist mikið á leikmenn franska liðsins en Mikkel Hansen var aðalmaðurinn í dönsku sókninni. En Danir spiluðu betri sóknarleik í síðari hálfleik og komu í veg fyrir að Frakkar næðu að stinga af. Þvert á móti náðu þeir að jafna leikinn þegar rúmar tíu mínútur voru til leiksloka og hleyptu mikilli spennu í leikinn. Nikola Karabatic fór einnig mikinn og sá til þess að Frakkar væru enn skrefinu framar. Hann skoraði 31. mark Frakka þegar um hálf mínúta var eftir af leiknum og Danir héldu í sókn. Mikkel Hansen hafði verið tekinn úr umferð lengi vel í seinni hálfleik og danska sóknin var við það að renna í sandinn þegar að leikstjórnandinn Bo Spellerberg stökk upp og skoraði jöfnunarmark Dana. Danir komust einu sinni yfir í framlengingunni og þá ætlaði allt um koll að keyra í Malmö Arena. En hlutirnir féllu með Frökkum á síðustu mínútunum. Danir köstuðu einu sinni boltanum frá sér og Omeyer, sem hafði ekki átt sinn besta leik, varði frá Hansen í síðustu sókn Dana. Michael Guigou náði að brjóta sér leið í gegnum dönsku vörnina á lokasekúndunum og tryggja sínum mönnum tveggja marka sigur og þar með heimsmeistaratitilinn. Nikola Karabatic átti stórleik og sannaði enn og aftur að hann er besti handboltamaður heims. Luc Abalo átti einnig frábæran leik í hægra horninu sem og fleiri - Guigou, Fernandez og Gille. Allir sýndu magnaða takta. En Danir geta einnig vel við unað enda hefur ekkert lið komist jafn nálægt því að ógna einokun Frakka síðustu ár. Hansen átti stórleik þegar og Niklas Landin átti hreint frábæran síðari hálfleik og framlengingu. Fleiri stóðu sig vel hjá Dönum en það var samt ekki nóg. Hið ógnarsterka lið Frakka stóð uppi sem sigurvegari á stórmóti í fjórða sinn í röð og vann sinn fjórða heimsmeistararatitil. Liðið er það fyrsta síðan 1974 sem tekst að verja titilinn á HM. Danir eru hins vegar með ungt og skemmtilegt lið og munu sjálfsagt fá annað tækifæri til að hrifsa af þeim titil á næstu árum.Leiknum var lýst beint á Boltavaktinni. Þar má einnig finna tölfræði leiksins: Frakkland - Danmörk.
Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti Fleiri fréttir Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Sjá meira