Guðmundur: Verulegur léttir að hafa klárað þennan leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júní 2011 20:14 Guðmundur Guðmundsson. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari, var fegin að íslenska liðinu tókst að landa mikilvægum sigri í Lettlandi í dag. Strákarnir okkar byrjuðu vel en lentu í vandræðum með Lettana í seinni hálfleiknum þar sem um tíma munaði aðeins einu marki á liðunum. „Það er verulegur léttir að hafa klárað þennan leik. Við byrjuðum vel varnarlega en gerðum of mikið af mistökum sóknarlega til að byrja með. Síðan var hálfleikurinn bara mjög góður miðað við það að við erum í raun að spila með nýtt lið," sagði Guðmundur Guðmundsson en hvorki Aron Pálmarsson eða Snorri Steinn Guðjónsson gátu verið með í leiknum vegna meiðsla. „Það var ný uppstilling og það vantaði báða leikstjórnendurna, Guðjón Valur stóð sig mjög vel engu að síður og gerði mjög mikilvæga hluti fyrir liðið," sagði Guðmundur en Guðjón Valur lék stærsta hluta leiksins sem leikstjórnandi og var auk þess markahæstur með 9 mörk. Ísland var 17-11 yfir í hálfleik en Lettarnir náðu að minnka muninn í eitt mark um miðjan seinni hálfleik. „Síðari hálfleikurinn var alls ekki nógu góður. Við gerum einhver sjö tæknimistök á fyrstu tíu mínútunum í síðari hálfleik og förum með fimm dauðafæri. Við hleypum þeim ókeypis inn í leikinn og það var algjör óþarfi," sagði Guðmundur. „Það getur allt gerst í slíkri stöðu og þá má ekkert útaf bregða. Auðvitað var þetta ekki nægilega gott en það er greinileg þreyta hjá mörgum leikmönnum og við þurfum að safna krafti fyrir sunnudaginn. Það er bara hreinn og klár úrslitaleikur við Austurríkismenn í Laugardalshöllinni," segir Guðmundur en það verður ítarlegra viðtal við Guðmund í Fréttablaðinu á morgun.
Handbolti Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Sjá meira