Füchse Berlin berst um þriðja sætið í beinni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. júní 2011 13:27 Dagur Sigurðsson er þjálfari Füchse Berlin. Nordic Photos / Bongarts
Stöð 2 Sport 3 mun sýna beint frá viðureign Magdeburg og Füchse Berlin í lokaumferð þýsku úrvalsdeildarinnar í dag. Um mikilvægan leik er að ræða fyrir Füchse Berlin því með sigri í dag gulltryggir liðið sér þriðja sæti deildarinnar og sleppur þar með við að þurfa að fara í gegnum forkeppni Meistaradeildar Evrópu í haust. Füchse Berlin er í harðri samkeppni við Rhein-Neckar Löwen um þriðja sætið en dugir jafntefli í dag til tryggja sér það. Liðið í fjórða sætinu kemst vissulega í Meistaradeildina en þarf að fara í áðurnefnda forkeppni. Leikurinn hefst klukkan 14.30 og fer þá fram heil umferð. Rhein-Neckar Löwen mætir Lemgo á útivelli. Kiel er í öðru sæti deildarinnar, með jafn mörg stig og Füchse en betra markahlutfall. Liðið mætir í dag Lübbecke á heimavelli. Hamburg er fyrir löngu búið að tryggja sér þýska meistaratitilinn enda liðið með sjö stiga forystu á Kiel. Hamburg hefur aðeins tapað sex stigum í allan vetur. Alfreð Gíslason þjálfar Kiel, Dagur Sigurðsson er þjálfari Füchse Berlin og Guðmundur Guðmundsson hjá Rhein-Neckar Löwen. Ólafur Stefánsson og Guðjón Valur Sigurðsson leika í dag sinn kveðjuleik með Löwen en þeir eru á leið til AG Kaupmannahafnar í sumar.
Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira