Füchse Berlin tryggði sér þriðja sætið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. júní 2011 16:23 Alexander Petersson í leik með Füchse Berlin. Nordic Photos / Bongarts
Füchse Berlin tryggði sér þátttökurétt í aðalkeppni Meistaradeildar Evrópu í handbolta á næstu leiktíð með góðum útisigri á Magdeburg, 30-24, í lokaumferð þýsku úrvalsdeildarinnar í dag. Dagur Sigurðsson hefur náð frábærum árangri með Füchse í vetur en fyrir tímabilið áttu fáir von á því að liðið myndi ná svona langt. Dagur hefur fengið mikið lof fyrir frammistöðu liðsins og var til að mynda einn fjögurra sem komu til greina sem næsti landsliðsþjálfari Þýskalands. Jafnræði var með liðunum framan af í dag en Füchse Berlin stakk af þegar um stundarfjórðungur var til leiksloka og vann að lokum öruggan sigur. Alexander Petersson var frábær í dag og skoraði þrjú mörk. Rhein-Neckar Löwen vann sinn leik í dag en verður að sætta sig við fjórða sætið. Liðið þarf því að taka þátt í forkeppni fyrir Meistaradeildina í haust. Liðið vann fimm marka útisigur á Lemgo í dag, 36-31, eftir að staðan var jöfn í hálfleik, 17-17. Róbert Gunnarsson skoraði sex mörk fyrir Löwen, Ólafur Stefánsson fjögur og Guðjón Valur Sigurðsson tvö. Þeir tveir síðastnefndu léku sinn kveðjuleik með félaginu í dag en þeir ganga til liðs við AG Kaupmannahöfn í sumar. Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari er þjálfari Löwen. Kiel endaði í öðru sæti deildarinnar en liðið vann átta marka sigur á Lübbecke, 36-28, í dag. Alfreð Gíslason er þjálfari Kiel en Aron Pálmarsson skoraði eitt mark fyrir liðið. Þórir Ólafsson skoraði fjögur fyrir Lübbecke. Ahlen-Hamm og Friesenheim féllu í B-deildina en Rheinland þarf að taka þátt í umspili um sæti í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.Úrslitin í dag:Göppingen - Grosswallstadt 26-26 - Sverre Jakosson skoraði eitt mark fyrir GrosswallstadtFriesenheim - Gummersbach 33-39Ahlen-Hamm - Flensburg 40-34Lemgo - Rhein-Neckar Löwen 31-36Balingen - Hamburg 24-33Magdeburg - Füchse Berlin 24-30Hannover-Burgdorf - DHC Rheinland 31-23 - Vignir Svavarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson skoruðu þrjú mörk hvor fyrir Hannover-Burgdorf. Sigurbergur Sveinsson komst ekki á blað og Hannes Jón Jónsson er meiddur.Kiel - Lübbecke 36-28 Wetzlar - Melsungen (11-10)Ákveðið var að flauta ekki síðari hálfleikinn á eftir að áhorfandi hneig niður. Kári Kristján Kristjánsson skoraði eitt mark fyrir Wetzlar í fyrri háfleiknum.
Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira