HM 2011: Agúst hefði frekar viljað vinna Angóla en Svartfjallaland Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. desember 2011 07:00 Dagný Skúladóttir. Mynd/Pjetur
Stelpurnar okkar eiga erfiða leiki gegn Noregi í kvöld og svo Þýskalandi á morgun sem gætu haft mikið að segja um möguleika Íslands á að komast áfram í 16 liða úrslit keppninnar. Ísland hefði með sigri á Angóla á sunnudagskvöld komið sér í efsta sæti A-riðils með fullt hús stiga eftir tvo leiki en liðið tapaði og er nú í næstneðsta sæti riðilsins. Ísland er með tvö stig, rétt eins og Noregur, Þýskaland og Svartfjallaland. Angóla er með fjögur stig í efsta sæti en Kínverjar í neðsta með ekkert. Fjögur efstu liðin komast áfram í 16 liða úrslit keppninnar. Ísland á enn þrjá leiki eftir í riðlinum og því getur margt gerst. Ísland mætir í næstu tveimur leikjum sterkum andstæðingum – Noregi og Þýskalandi. Líklegt verður að teljast að Ísland þurfi að fá eitthvað úr þeim leikjum til að eiga enn möguleika á sæti í 16 liða úrslitunum áður en kemur að leiknum gegn Kína á föstudagskvöldið. Ástæðan fyrir því er að ef Ísland og Angóla verða á endanum jöfn að stigum mun árangur í innbyrðisviðureignum ráða því hvort lið verður ofar í töflunni. Miðað við að Kína verði í neðsta sæti gæti það orðið til þess að Angóla endaði í fjórða sæti riðilsins og Ísland því fimmta. Angóla á mjög erfiða leiki eftir í riðlinum og gæti hæglega endað með þau fjögur stig sem liðið er með núna. Ef Ísland tapar bæði fyrir Noregi og Þýskalandi duga tvö stig gegn Kína ekki til að komast upp fyrir Angóla í töflunni. „Ef ég gæti skipt á leikjum myndi ég frekar vilja vinna þennan leik [en leikinn gegn Svartfjallalandi],“ sagði Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari íslenska landsliðsins, eftir tapleikinn gegn Angóla. Þetta eru þó aðeins vangaveltur og miðað við úrslitin fyrstu tvo keppnisdagana er ljóst að það er aldrei hægt að útiloka óvænt úrslit í leikjum A-riðils.
Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Gray hetja Tottenham Enski boltinn Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Enski boltinn Yfirgefur Keflavík vegna komu Martins Körfubolti Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Enski boltinn Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Van Gerwen: „Alveg sama um Luke og Luke“ Sport Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fleiri fréttir Óðinn bikarmeistari fjórða árið í röð Kolstad tapaði bikarúrslitaleiknum í vítakeppni Segir starfið í húfi hjá Alfreð Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Íslendingarnir í miklum ham fyrir EM Handarbrotinn og missir af úrslitaleiknum Reynir farinn að láta til sín taka í þýsku deildinni Elín Klara atkvæðamikil og sigursæl í jólaleiknum Birgir byrjaði rólega eftir jólafrí en fagnaði sigri Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Haukur getur náð hundrað plús hundrað fyrir EM-fríið Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið Sjá meira