Sjöstrand: Erum ósáttir með dóma undir lokin Smári Jökull Jónsson í Malmö skrifar 30. janúar 2011 15:31 Johan Sjöstrand var svekktur að leik loknum Mynd / AFP
Johan Sjöstrand var frábær í marki Svía í bronsleiknum gegn Spánverjum þó ekki hafi það dugað til sigurs. Hann varði 15 skot í fyrri hálfleiknum og hefur átt gott mót. Hann var þó gríðarlega svekktur í leikslok enda Svíar nálægt því að ná í verðlaun á heimavelli. "Við vorum virkilega nálægt þessu. Við fengum möguleika til að komast í þriggja marka forystu á tímabili en fengum tvær brottvísanir á sama tíma og það er auðvitað erfitt að spila fjórir gegn sex. Það eru smáatriðin sem skipta máli enda sést að munurinn er lítill í lokin," sagði Sjöstrand í viðtali að leik loknum. "Mér fannst við spila vel í fyrri hálfleiknum. Í seinni hálfleiknum náðu þeir svo þriggja marka forystu og við þurftum að hafa mikið fyrir því að minnka það niður. Spánverjar eru auðvitað með mjög sterkt lið og nýttu sér vel það þegar þeir voru fleiri inni á vellinum," bætti Sjöstrand við. Svíar voru óánægðir með dómgæsluna undir lokin og fengu meðal annars dæmt á sig vafasamt sóknarbrot á mikilvægu augnabliki þegar lítið var eftir. "Mér fannst það vafasamt, svo ekki sé meira sagt. Það skipti miklu máli á þessu augnabliki í leiknum. Við erum ósáttir með nokkra dóma undir lokin," bætti markvörðurinn knái við. Sjöstrand var eins og áður segir frábær í leiknum og ef ekki hefði verið fyrir hans góðu frammistöðu hefðu Svíar misst Spánverja fram úr sér í fyrri hálfleiknum. "Ég er ánægður með minn leik en það skiptir ekki máli, munurinn er eitt mark þeim í vil að lokum. Markvörður þeirra er frábær líka og hann varði vel sömuleiðis. Við getum einhvern tíman glaðst yfir góðum árangri á mótinu en það er erfitt núna því við vildum ná í bronsið," sagði Johan Sjöstrand að lokum en þetta er í fyrsta skipti í langan tíma sem Svíar keppa um verðlaun á stórmóti í handbolta.
Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira