Þingvellir ofsetnir af köfunarfyrirtækjum 21. nóvember 2011 13:00 Kafarar koma um langan veg til Íslands til að kanna undraveröld Silfru. Er svo komið að setja þarf upp einhvers konar aðgangsstýringu vegna of mikils átroðnings við þessa náttúruperlu. Fréttablaðið/Vilhelm
Sprenging er orðin í ásókn í köfun á Þingvöllum. Setja á fyrirtækjunum sem þar selja köfun starfsramma til að hindra að gjáin Silfra verði hreinlega ofsetin af köfurum. „Við erum í góðu samstarfi við þessi fyrirtæki að skoða hvernig við getum gætt að því að þarna verði ekki stjórnlaus fjölgun og hvernig þau geti selt þá vöru sem viðskiptavinir eru að kaupa,“ segir Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður. Meðal annars er rætt um að gera þurfi bílaplan, koma upp salernisaðstöðu og einhverju skjóli þar sem menn geti útbúið sig. Ólafur segir fyrirtækin sjálf búa að vel þjálfuðu starfsfólki og sinna mikilvægu hlutverki í ferðaþjónustu enda Silfra heimsfræg meðal kafara. Allir séu sammála um að starfsemin þurfi að búa við góð skilyrði en átroðningurinn sé hreinlega svo mikill að gróður sé orðinn traðkaður ofan í svörð. Því sé sá tími einfaldlega liðinn að köfunarfyrirtækin geti óheft gengið í Silfru. „Þarna eru mjög viðkvæm, mosagróin svæði allt í kring og álagið er gríðarlega mikið. Síðan eru bílarnir oft í vegkantinum á mjög þröngum vegi og það er alveg óviðunandi,“ segir þjóðgarðsvörður. Málið var rætt á fundi Þingvallanefndar í september. Þar var ákveðið að Ólafur myndi halda áfram að undirbúa að settar verði reglur í samráði við köfunarfyrirtækin og Siglingastofnun um vottun og starfsleyfi fyrirtækjanna. Þá var samþykkt að köfunarfyrirtækin greiði gjald fyrir aðganginn og aðstöðuna og það notað til að tryggja öryggi og kosta framkvæmdir. „Fyrirtækin koma þarna og nýta sér takmörkuð gæði og þurfa aðstöðu og við höfum ekki fé til að gera meira en við höfum gert,“ segir Ólafur sem rætt hefur við forsvarsmenn fyrirtækjanna um aðstöðugjaldið. „Það hefur ekki verið samþykkt en því hefur verið tekið af skilningi. Það er allra hagur að vel sé að þessum málið staðið.“- gar
Mest lesið Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Hvalur háði hálftíma dauðastríð Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Lögreglan leitar að Cezary Innlent Tveimur sagt upp á Bifröst Innlent Fleiri fréttir Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Lögreglan leitar að Cezary Aflvana togari hættulega nálægt landi Vegum lokað og bílar taldir Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Segir verk Þórbergs enn ótrúlega lifandi „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Stærsta kókaínmál Íslandssögunnar og ráðherra sakar starfsmenn Hvals um fíflaskap Sjá meira