Máttur samvitundar Sunna Dóra Möller og Bolli Pétur Bollason skrifar 20. október 2011 06:00 Við hjónin fórum að velta fyrir okkur grein í Fréttablaðinu þann 14. október sl. eftir Pawel Bartoszek, þar sem því er haldið fram að kirkjan sé ekki leiðarljós í siðferðisefnum. Nú yrði það hrokafullt af okkur að halda því fram að hún sé það á sama hátt og það getur falið í sér sama hroka að halda því fram að hún sé það ekki. Það virkar víst aldrei vel þegar við alhæfum um sérstök mál og stofnanir í samfélaginu. Við veittum því athygli í umræddri grein að spurt var hvort Þjóðkirkjan eða önnur trúfélög væru marktæk þegar kemur að því að vísa veginn í siðferðisefnum, trúleysingjanum fyndist það ekki, en hver yrði þó að gera það upp við sig. Það virðist vera þannig í allri í umræðuhefð í dag að það skortir samtal og samstarf þvert á allar línur og gildir einu hvort um er að ræða pólitíska umræðu eða trúarlega. Hvers vegna finnst okkur ekki mark takandi á hvert öðru? Kirkjan hefur lagt ýmislegt gott á siðferðislegar vogarskálar í gegnum tíðina, það hafa trúleysingjar líka gert, stjórnmálamenn, pistlahöfundar og ótalmargir aðrir. Er staðan orðin þannig í dag að við erum svo upptekin af baráttunni um eigin málstað að við erum hætt að geta átt samtal og samvinnu um það sem leiðir til heilla? Þegar kemur að almannaheill, þurfum við að tala saman. Þegar við iðkum gott samskiptasiðferði, eigum við samtal og spyrjum áður en við staðhæfum, skiptumst svo á skoðunum. Þá göngum við ekki út frá því sem vísu að allir séu á sömu skoðun, en lítum á hvert samtal sem tækifæri til að læra nýja hluti, vinnum þannig á því sem aðgreinir okkur og finnum það sem tengir okkur saman. Fjölbreytileiki í skoðunum á að vera tækifæri en ekki hindrun. Þó erum við ekki að taka upp hanskann fyrir skoðanir sem meiða manneskjuna eða koma í veg fyrir að hún lifi lífi í fullri gnægð. Slíkar skoðanir eru ekki í anda kirkjunnar né nokkurs annars. Þó ber okkur að varast þá hættu sem gætir í ákveðinni miðstýringu þegar kemur að skoðanafrelsi. Það takmarkar frelsið til að ákveða hvað er okkur og börnunum okkar fyrir bestu og styður við þá þróun að gera einstaklinga og stofnanir tortryggilegar í samfélaginu í dag. Það getur ekki verið vænlegt að reyna að miðstýra því hvað er rétt og rangt í siðferðislegum, trúarlegum og pólitískum málum. Það gerir ekkert annað en að auka á flokkadrætti og draga skýrari línur á milli einstaklinga og hópa í samfélaginu. Á þann hátt eykst aðgreining frekar en dregur úr henni, en sá úrdráttur ætti að vera markmið í allri umræðu. Það er ekki nóg að einstaklingar séu tortryggðir heldur er jafnvel grafið undan trúverðugleika heillar stéttar eins og sjá má í athugasemdum netmiðla, t.d. að mönnum flökri við það eitt að heyra prest nefndan á nafn vegna þess að til eru kirkjunnar þjónar, sem brjóta af sér. Við vitum að í öllum stéttum samfélagsins er fólk sem brýtur af sér siðferðislega, þótt það starfi undir boðskap, sem leiðbeinir í allt aðra átt. Ófáir hafa heyrt um vegpresta, sem benda á leiðina en fara hana ekki sjálfir. Slíkt verður vissulega tortryggilegt, en það á við um okkur öll og kirkjan er ekki einvörðungu prestar. Við vinnum að góðu siðferði saman, kirkjan vill verða samferða í þeim málum, höfuð hennar Jesús Kristur ákvað ekki fyrir neinn hvað hann vildi verða, hann nefnilega spurði, hann spurði þann veika fyrst hvort hann vildi verða heill og síðan fylgdi hann honum eftir. Það gefur auga leið að Jesús sjálfur studdi ekki við ofbeldi né nokkuð annað það sem grefur undan trausti hér á jörð. Það er einmitt þess vegna sem sumir vilja trúa því, sem hann segir og það er hlutverk kirkjunnar þjóna sem og annarra að koma því til leiðar. Eitt er þó verra en allt annað og það er þegar þjónar kirkjunnar vinna myrkraverk í skjóli þess boðskapar, sem kirkjan vill rækta og vitna um. Það er öllum ljóst. Við viljum ekki slíka þjóna, en það er aðeins eitt sem hægt er að gera til þess að burtreka svoleiðis ósóma og það er að upplýsa og vinna saman að því að gera veruleikann opnari og standa ekki í vegi fyrir því með því að alhæfa á neikvæðan hátt um vettvang er vill í eðli sínu vel. Mesti lærdómur okkar og stærsta tækifæri okkar í dag er að reyna að mætast á miðri leið og eyða samfélagsmeinum. Það krefst þess að við reynum að skilja fjölbreyttan bakgrunn okkar. Það hefur sjaldan verið talað eins mikið um siðbót samfélagsins okkar eins og eftir hið veraldlega hrun, sem var ekki síður andlegt. Erum við á réttri leið í þeirri umræðu eða sökkvum við dýpra og dýpra á hverjum degi niður í skotgrafahernað og mannskemmandi umræðu? Gleymum því ekki að kynslóðir framtíðarinnar fylgjast náið með umfjöllun fullorðinna á netinu og læra það sem fyrir þeim er haft. Ábyrgðin er okkar sem og valið. Það er einlæg skoðun okkar hjóna að við eigum að velja það sem styrkir okkur og eflir í samtali, í skoðunum og í lífinu almennt. Reynslan til þessa sýnir að niðurdrepandi samtal litað tortryggni hefur fleytt okkur heldur stutt. Hvernig væri að láta á nýja umræðuhefð reyna og öllu jákvæðari? Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Skýr stefna um málfrelsi Róbert H. Haraldsson Skoðun Sporin þín Valtýr Soffía Sigurðardóttir Skoðun Þriggja stiga þögn Bjarni Karlsson Skoðun Að saga rótina undan trénu og halda að stofninn vaxi hraðar: hugleiðing um tillögur Viðskiptráðs. Birgir Orri Ásgrímsson Skoðun Mikilvægi aðgengis og algildrar hönnunar að byggingum í dag og til framtíðar Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Hvers vegna sífellt fleiri sækjast eftir einveru Ingrid Kuhlman Skoðun Nú þarf að gyrða sig í brók Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Sjallar og lyklaborðið Sigfús Ómar Höskuldsson Skoðun Svarað á sama máli Ingibjörg Ferdinandsdóttir Skoðun Dettifoss: Lokað! Baldvin Esra Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun Sporin þín Valtýr Soffía Sigurðardóttir skrifar Skoðun Að saga rótina undan trénu og halda að stofninn vaxi hraðar: hugleiðing um tillögur Viðskiptráðs. Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Mikilvægi aðgengis og algildrar hönnunar að byggingum í dag og til framtíðar Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Sjallar og lyklaborðið Sigfús Ómar Höskuldsson skrifar Skoðun Fimm af tíu veitingastöðum hættu með hvalkjöt Valgerður Árnadóttir,Stefán Yngvi Pétursson,Rósa Líf Darradóttir,Anahita S. Babaei skrifar Skoðun „Stóra fallega frumvarpið“ hans Trump Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Verndun vatns og stjórn vatnamála Ólafur Arnar Jónsson,Sigurður Guðjónsson skrifar Skoðun Gegn hernaði hvers konar Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Hvers vegna sífellt fleiri sækjast eftir einveru Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þriggja stiga þögn Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Nú þarf að gyrða sig í brók Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Lesblindir og stuðningur í skólum Snævar Ívarsson skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar – fallegt orðalag en brotakennd framkvæmd Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar Skoðun Rýnt í stöðu kvenna með örorkulífeyri Huld Magnúsdóttir skrifar Skoðun Brot sem fyrnast í höndum lögreglu – hversu mörg í viðbót? Þórhildur Gyða Arnarsdóttir skrifar Skoðun Olíuleit á Drekasvæði - tilvistarleit Halldór Reynisson skrifar Skoðun Kosningar í september Guðveig Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Þegar orkuöflun er sett á ís - dæmið frá Suður-Afríku Hallgrímur Óskarsson skrifar Skoðun Framtíð nemenda í Kópavogi í fyrsta sæti Halla Björg Evans skrifar Skoðun Skýr stefna um málfrelsi Róbert H. Haraldsson skrifar Skoðun Heilsufarsmat á vinnustöðum: Góð fjárfesting í heilbrigði og vellíðan starfsfólks Gígja Valgerður Harðardóttir skrifar Skoðun Munar þig um 5-7 milljónir árlega? Jón Pétur Zimzen skrifar Skoðun Keldnaland – fjölmenn hverfi í mótun Þorsteinn R. Hermannsson skrifar Skoðun Eflum traustið Helgi Áss Grétarsson,Marta Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Börn í gámaskólum á meðan bæjarskrifstofur stækka – hvar er forgangsröðin? Ásgeir Elvar Garðarsson skrifar Skoðun Hver er kjarninn í samfélagi sem selur hjarta sitt? Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar Skoðun Seljum börnum nikótín! Hugi Halldórsson skrifar Skoðun Sundrung á vinstri væng Jökull Sólberg Auðunsson skrifar Skoðun Þegar samfélagið missir vinnuna Hrafn Splidt Þorvaldsson skrifar Skoðun Akademískt frelsi og ókurteisi Kolbeinn H. Stefánsson skrifar Sjá meira
Að saga rótina undan trénu og halda að stofninn vaxi hraðar: hugleiðing um tillögur Viðskiptráðs. Birgir Orri Ásgrímsson Skoðun
Mikilvægi aðgengis og algildrar hönnunar að byggingum í dag og til framtíðar Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Að saga rótina undan trénu og halda að stofninn vaxi hraðar: hugleiðing um tillögur Viðskiptráðs. Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
Skoðun Mikilvægi aðgengis og algildrar hönnunar að byggingum í dag og til framtíðar Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Fimm af tíu veitingastöðum hættu með hvalkjöt Valgerður Árnadóttir,Stefán Yngvi Pétursson,Rósa Líf Darradóttir,Anahita S. Babaei skrifar
Skoðun Skóli án aðgreiningar – fallegt orðalag en brotakennd framkvæmd Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar
Skoðun Brot sem fyrnast í höndum lögreglu – hversu mörg í viðbót? Þórhildur Gyða Arnarsdóttir skrifar
Skoðun Heilsufarsmat á vinnustöðum: Góð fjárfesting í heilbrigði og vellíðan starfsfólks Gígja Valgerður Harðardóttir skrifar
Skoðun Börn í gámaskólum á meðan bæjarskrifstofur stækka – hvar er forgangsröðin? Ásgeir Elvar Garðarsson skrifar
Að saga rótina undan trénu og halda að stofninn vaxi hraðar: hugleiðing um tillögur Viðskiptráðs. Birgir Orri Ásgrímsson Skoðun
Mikilvægi aðgengis og algildrar hönnunar að byggingum í dag og til framtíðar Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun