Björgvin Páll í beinni í dag: Allt er miklu stærra en í Sviss Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. september 2011 10:00 Björgvin Páll átti frábær ár með Kadetten í Sviss. Mynd/Daníel
Björgvin Páll Gústavsson er nýjasti Íslendingurinn í þýsku deildinni sem hefst í dag, en hann mun spila sinn fyrsta leik með Magdeburg á heimavelli á móti Göppingen í dag. Leikurinn hefst klukkan 17.00 og er í beinni á Stöð 2 Sport. „Þetta er allt miklu stærra en í Sviss enda er þetta stærsta og besta deildin í heiminum. Takmarkið var að komast hingað, það tókst og nú er bara að standa sig," sagði Björgvin Páll í viðtali á Stöð 2 í gærkvöldi. „Ég kann rosalega við mig og þetta fer vel af stað. Undirbúningstímabilið er búið og maður er spenntur að fara að byrja á alvörunni. Tilhlökkunin er alltaf til staðar og það er ekkert stress komið ennþá. Ég er yfirleitt laus við það. Það er mikil tilhlökkun að fá að takast á við fyrsta leikinn sinn í Bundesligunni," segir Björgvin Páll. „Það er gaman að fá að byrja á svona hörkuleik. Göppingen er lið sem við þurfum að vinna ef við ætlum að gera eitthvað í deildinni. Það er svipað að styrkleika og við. Þetta er mjög mikilvægur leikur," sagði Björgvin. „Liðið náði góðum árangri í fyrra og markmiðið er að halda áfram og byggja ofan á það sem menn hafa verið að gera. Þetta er sterk deild en við ætlum að reyna að vera í kringum sjötta sætið," sagði Björgvin. „Félagið var í smá vandræðum peningalega séð fyrir nokkrum árum en menn eru búnir að vinna sig upp úr því. Það er frábært að fá Evrópukeppnina ofan á deildina. Það er mikil stemmning í borginni fyrir Evrópukeppninni og það væri gaman að komast sem lengst þar," sagði Björgvin að lokum.
Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira