Við erum öll Norðmenn 23. júlí 2011 11:00
Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, lofaði í gær að Norðurlöndin myndu standa saman eftir árásirnar í gær. Bildt tjáði sig á Twitter og sendi samúðarkveðjur til Norðmanna og bauð fram aðstoð. „Við erum öll Norðmenn," sagði hann jafnframt. Barack Obama Bandaríkjaforseti sagði árásirnar í gær minna á mikilvægi þess að alþjóðasamfélagið vinni saman að því að koma í veg fyrir hryðjuverk. Hann sagði að Bandaríkin myndu aðstoða Norðmenn við rannsókn hryðjuverkanna ef þess yrði óskað. David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, bauð einnig fram aðstoð við að leysa málið. Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, sagði árásirnar óásættanlegt ofbeldi. Hann sagði alla frönsku þjóðina samhryggjast norsku þjóðinni. - þeb
Hryðjuverk í Útey Noregur Tengdar fréttir Sprenging í Osló Sprenging varð í miðborg Osló um tuttugumínútur yfir eitt að íslenskum tíma og er mikil ringulreið í borginni vegna þessa. Lítið er vitað um stöðuna en rúður sprungu. Sprengingin varð í hverfi þar sem fjölmargar byggingar norsku ríkisstjórnarinnar eru, en þar er jafnframt bygging Verdens Gang. Fram kemur á fréttavef Aftenposten að margir séu slasaðir. Blóð sást í andliti og á höndum margra. Ekki er vitað hvort um hryðjuverkaárás var að ræða. 22. júlí 2011 14:04 Stoltenberg: Noregur í grafalvarlegri stöðu Norska lögreglan hefur staðfest að Jens Stoltenberg forsætisráðherra er í öruggu skjóli. Stoltenberg segir sjálfur við norska ríkisútvarpið og staða Noregs sé grafalvarleg. 22. júlí 2011 18:04 Biskup sendir Norðmönnum samúðarkveðjur Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, hefur sent samúðarkveðjur til Ole Christian Kvarme, biskups í Osló, og til Dag Wernø Holter, sendiherra Noregs á Íslandi, vegna þeirra árásanna í Osló og Útey í dag. 22. júlí 2011 21:41 Gríðarleg sprenging segir Íslendingur í Osló "Þetta hefur verið gríðarleg sprengja miðað við hvað allt hristist og þetta langt í burtu,“ segir Haukur Jósef sem staddur er í Osló, um tveimur kílómetrum frá stjórnarráðshverfinu, þar sem sprengja sprakk um klukkan tuttugu mínútur yfir eitt að íslenskum tíma. 22. júlí 2011 14:38 Forsætisráðherra Noregs í felum Forsætisráðherra Noregs, Jens Stoltenberg, hefur að ráði lögreglu ákveðið að greina ekki frá því hvar hann heldur til eftir sprengjuárás í miðborg Oslóar síðdegis í dag. Skrifstofur forsætisráðherrans eru í skrifstofubyggingunni sem fór einna verst út úr árásinni. 22. júlí 2011 16:32 Árásarmaðurinn er norskur Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, segir Norðmenn vera litla en stolta þjóð sem láti ekki hræða sig. Í kvöld kom Stoltenberg í fyrsta sinn fram eftir árásirnar í Osló og Útey í dag. Hann ræddi þá við blaðamenn ásamt dómsmálaráðherranum Knut Storberget. Stoltenberg sagði hugsanir sínar og bænir vera hjá hinum særðu og ættingjum þeirra sem misstu ástvini í dag. 22. júlí 2011 20:53 Boðað til minningarathafnar Boðað hefur verið til minningarathafnar við Tjörnina í Reykjavík á morgun vegna árásanna á Osló og í Útey í dag. "Þeir sem vilja geta mætt með kerti,“ segir á síðu á samskiptavefnum Facebook sem stofnuð hefur verið vegna athafnarinnar. Athöfnin hefst klukkan 18. 22. júlí 2011 20:33 Obama vottar Norðmönnum samúð sína Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, segir atburðina í Noregi í dag sýna að alþjóðasamfélagið verði að vinna saman til að koma í veg fyrir hryðjuverk. Hann vottar Norðmönnum samúð sína og hefur heitið norskum stjórnvöldum fullum stuðningi við rannsókn árásanna í Osló og Útey. 22. júlí 2011 19:47 Óttast að sprengja sé í Útey Óttast er að það sé sprengja á Útey, þar sem að minnsta kosti fjórir voru skotnir til bana í dag. Þetta staðfestir norska lögreglan við norska ríkisútvarpið. 22. júlí 2011 18:17 Mikill ótti í Osló Það greip um sig ótti í Osló þegar sprengingin sprakk, segir Daníel Ingólfsson, sem staddur var í um 300 - 400 metra fjarlægð frá staðnum þar sem sprengjan sprakk. "Við sátum beint hjá ráðhúsinu, um svona 400 metrum frá. Þetta var mjög mikil sprenging," segir Daníel. Stuttu seinna hafi fólk séð reyk. 22. júlí 2011 15:30 Allt að 30 myrtir í Útey Norska ríkisútvarpið og dagblaðið Verdens Gang hafa eftir sjónarvottum að þeir hafi séð að minnsta kosti 20-30 látna á eyjunni Útey. Þar hófst á miðvikudaginn árleg sumarhátíð ungliðahreyfingar norska Verkamannaflokksins en talið er að hátt í 700 manns hafi verið á eyjunni í dag þegar karlmaður í gervi lögreglumanns hóf að skjóta á fólk í kringum sig. 22. júlí 2011 19:06 Byssumaðurinn sást í Osló fyrr í dag Maðurinn sem hóf skothríð á eyjunni Útey seinnipartinn sást í miðborg Osló skömmu áður en sprengja sprakk þar í dag. Hann er nú yfirheyrður af lögreglu sem kannar hvort hann beri einnig ábyrgð á árásunum í höfuðborginni, að því er fram kemur á vef norska dagblaðsins Verdens Gang. Árásarmanninum er sagður norrænn í útliti og hávaxinn. Lögreglan upplýsir ekki hvort maðurinn sé norskur ríkisborgari. 22. júlí 2011 20:14 Staðfest að sprengja fannst í Útey Ósprengdar sprengdur fundust í Útey í dag. Ekki er vitað hverskonar sprengjur er um að ræða. Þetta staðfesti lögreglustjórinn í Osló á blaðamannafundi sem var haldinn um klukkan ellefu að dönskum tíma í nótt. 22. júlí 2011 23:20 Viðbúnaður á Íslandi ekki verið aukinn vegna sprengjunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra er ekki með aukinn viðbúnað hér á landi vegna sprengjuárásarinnar í Osló. Guðrún Jóhannesdóttir, fulltrúi almannavarnadeildarinnar segir að það sé stjórnvalda að taka ákvörðun um slíkt. 22. júlí 2011 15:56 Einn maður handtekinn vegna skotárásarinnar Lögreglan í Noregi hefur handtekið mann sem grunaður er um að bera ábyrgð á skotárásinni í Utøya í Noregi í dag. 22. júlí 2011 17:22 Stoltenberg ætlaði að ávarpa ungliða á eyjunni Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs og leiðtogi Verkamannaflokksins, átti á morgun að flytja ávarp á eyjunni þar sem maður hóf að skjóta á ungmenni fyrr í dag. Gro Harlem Brundtland, fyrrverandi forsætisráðherra, heimsótti eyjuna fyrr í dag og Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs, var á eyjunni í gær. Hér má sjá viðtal við hann þar sem talar um að norska ríkisstjórnin styður stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna. 22. júlí 2011 17:51 Sprengja orsakaði sprenginguna - fleiri en einn látinn Lögreglan í Osló hefur staðfest að sprengja hafi orsakað öfluga sprengingu í miðbæ borgarinnar, en sprengingin olli mikilli eyðileggingu. Þetta kemur fram í beinni útsendingu á fréttastöðinni Sky. 22. júlí 2011 15:19 Kunna að vera fleiri sprengjur á svæðinu Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, lét þau orð falla í viðtali við Vísi að fleiri sprengjur kynnu að vera í Osló, á svæðinu þar sem miklar sprengingar urðu á öðrum tímanum í dag. 22. júlí 2011 15:50 Húsleit hjá byssumanninum Norska lögreglan gerði nú ellefta tímanum í kvöld húsleit í íbúð mannsins sem handtekinn var í Útey seinnipartinn í dag. Maðurinn fór klæddur eins og lögreglumaður í Útey og sagðist vera kominn þangað vegna sprengjunnar sem sprakk í Osló fyrr í dag. Skömmu síðar hóf hann að skjóta á fólk í kringum sig. Lögreglan hefur staðfest að 10 eru látnir en fullyrt er að tala fallinna muni hækka. Fyrr í kvöld var í norskum fjölmiðlum haft eftir sjónarvottum að allt að 30 væru látnir. 22. júlí 2011 22:54 Lögreglan staðfestir að minnst 10 hafi fallið í skotárásinni Við höfum fengið upplýsingar um það að tíu hafi fallið, en við búumst við því að tala fallinna munu hækka, segir norska lögreglan í fréttatilkynningu um skotárásina í Útey í dag. Norska ríkissjónvarpið og Verdens Gang höfðu eftir vitnum í dag að á þriðja tug manna væru látnir Norska Aftenposten segir að 17 manns hafi verið fluttir á sjúkrahús. "Miðað við það sem ég hef séð hafa minnst fjórir verið skotnir og drepnir,“ segir umdæmisstjóri ungliðahreyfingar norska Verkamannaflokksins í Þelamörk. 22. júlí 2011 22:07 Mest lesið „Fyrst og fremst erum við að biðja um að fá að vera skráð í okkar hús“ Innlent Lofar látum og vísar gagnrýni Samtaka atvinnulífsins á bug Innlent Allt að áttatíu þúsund mæti í miðbæinn og götulokanir í gildi Innlent Brunaði austur til að finna litla frænda Innlent Flugumferðarstjórar aflýsa vinnustöðvunum á morgun og laugardag Innlent Belgar komu í veg fyrir samþykkt um nýtingu rússneskra eigna Erlent Starfsmenn Kubbs og Terra grunaðir um samráð Innlent Þriggja ára fangelsi eftir flug frá Berlín Innlent Pallborðið: Dómgreindarbrestur hjá CoolBet Innlent Villur í dómum sömdum með aðstoð gervigreindar Erlent Fleiri fréttir Trump slaufar öllum viðræðum við Kanada út af sjónvarpsauglýsingu sem fór fyrir brjóstið á honum Villur í dómum sömdum með aðstoð gervigreindar Belgar komu í veg fyrir samþykkt um nýtingu rússneskra eigna Verja kjarnorkuvopn sín á norðurslóðum með leynilegu eftirlitskerfi Sýknaður af öllum ákærum vegna „blóðuga sunnudagsins“ „Ísrael mun missa allan stuðning“ Annað safn rænt í Frakklandi um helgina Rannsaka „glæfraleg“ svikabrigsl fyrir andlát skákmeistarans unga Hafði varað við því að árásamaðurinn væri í lögreglubúning Gera ráð fyrir tugþúsundum á kosningafundum í Búdapest Mikill hiti í síðustu kappræðunum fyrir kosningar Leggur viðskiptaþvinganir á rússneska olíurisa Hafa drepið 34 í árásum á meinta smyglara Myndavélar sneru í ranga átt er gripunum var stolið Rannsaka jákvæð áhrif covid-bóluefnis á krabbameinssjúklinga Gerðu árás á leikskóla í Karkív Hegseth bannar nú samskipti við þingið Trump gæti veitt sjálfum sér tugi milljarða í bætur frá eigin stjórn Vísindamenn segja mikilvægt að vanda valið á þunglyndislyfjum Sextíu og þrír látnir eftir umferðarslys í Úganda Gerðu árás á rússneska efnaverksmiðju í Bryansk Óttast að senda hermenn til Gasa Rífa hluta Hvíta hússins fyrir veislusal Trumps Ólíklegt að Trump og Pútín muni funda í bráð Serbneskur stríðsglæpamaður farinn yfir móðuna miklu 21 árs fangelsi fyrir banatilræðið gegn Fico Gagnrýndur fyrir ummæli um ógn af hálfu innflytjenda Refsidómi Diddy verði áfrýjað Fyrsta konan til að verða forsætisráðherra Japans Selja neyðargetnaðarvörn sem lausasölulyf í fyrsta skipti Sjá meira
Sprenging í Osló Sprenging varð í miðborg Osló um tuttugumínútur yfir eitt að íslenskum tíma og er mikil ringulreið í borginni vegna þessa. Lítið er vitað um stöðuna en rúður sprungu. Sprengingin varð í hverfi þar sem fjölmargar byggingar norsku ríkisstjórnarinnar eru, en þar er jafnframt bygging Verdens Gang. Fram kemur á fréttavef Aftenposten að margir séu slasaðir. Blóð sást í andliti og á höndum margra. Ekki er vitað hvort um hryðjuverkaárás var að ræða. 22. júlí 2011 14:04
Stoltenberg: Noregur í grafalvarlegri stöðu Norska lögreglan hefur staðfest að Jens Stoltenberg forsætisráðherra er í öruggu skjóli. Stoltenberg segir sjálfur við norska ríkisútvarpið og staða Noregs sé grafalvarleg. 22. júlí 2011 18:04
Biskup sendir Norðmönnum samúðarkveðjur Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, hefur sent samúðarkveðjur til Ole Christian Kvarme, biskups í Osló, og til Dag Wernø Holter, sendiherra Noregs á Íslandi, vegna þeirra árásanna í Osló og Útey í dag. 22. júlí 2011 21:41
Gríðarleg sprenging segir Íslendingur í Osló "Þetta hefur verið gríðarleg sprengja miðað við hvað allt hristist og þetta langt í burtu,“ segir Haukur Jósef sem staddur er í Osló, um tveimur kílómetrum frá stjórnarráðshverfinu, þar sem sprengja sprakk um klukkan tuttugu mínútur yfir eitt að íslenskum tíma. 22. júlí 2011 14:38
Forsætisráðherra Noregs í felum Forsætisráðherra Noregs, Jens Stoltenberg, hefur að ráði lögreglu ákveðið að greina ekki frá því hvar hann heldur til eftir sprengjuárás í miðborg Oslóar síðdegis í dag. Skrifstofur forsætisráðherrans eru í skrifstofubyggingunni sem fór einna verst út úr árásinni. 22. júlí 2011 16:32
Árásarmaðurinn er norskur Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, segir Norðmenn vera litla en stolta þjóð sem láti ekki hræða sig. Í kvöld kom Stoltenberg í fyrsta sinn fram eftir árásirnar í Osló og Útey í dag. Hann ræddi þá við blaðamenn ásamt dómsmálaráðherranum Knut Storberget. Stoltenberg sagði hugsanir sínar og bænir vera hjá hinum særðu og ættingjum þeirra sem misstu ástvini í dag. 22. júlí 2011 20:53
Boðað til minningarathafnar Boðað hefur verið til minningarathafnar við Tjörnina í Reykjavík á morgun vegna árásanna á Osló og í Útey í dag. "Þeir sem vilja geta mætt með kerti,“ segir á síðu á samskiptavefnum Facebook sem stofnuð hefur verið vegna athafnarinnar. Athöfnin hefst klukkan 18. 22. júlí 2011 20:33
Obama vottar Norðmönnum samúð sína Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, segir atburðina í Noregi í dag sýna að alþjóðasamfélagið verði að vinna saman til að koma í veg fyrir hryðjuverk. Hann vottar Norðmönnum samúð sína og hefur heitið norskum stjórnvöldum fullum stuðningi við rannsókn árásanna í Osló og Útey. 22. júlí 2011 19:47
Óttast að sprengja sé í Útey Óttast er að það sé sprengja á Útey, þar sem að minnsta kosti fjórir voru skotnir til bana í dag. Þetta staðfestir norska lögreglan við norska ríkisútvarpið. 22. júlí 2011 18:17
Mikill ótti í Osló Það greip um sig ótti í Osló þegar sprengingin sprakk, segir Daníel Ingólfsson, sem staddur var í um 300 - 400 metra fjarlægð frá staðnum þar sem sprengjan sprakk. "Við sátum beint hjá ráðhúsinu, um svona 400 metrum frá. Þetta var mjög mikil sprenging," segir Daníel. Stuttu seinna hafi fólk séð reyk. 22. júlí 2011 15:30
Allt að 30 myrtir í Útey Norska ríkisútvarpið og dagblaðið Verdens Gang hafa eftir sjónarvottum að þeir hafi séð að minnsta kosti 20-30 látna á eyjunni Útey. Þar hófst á miðvikudaginn árleg sumarhátíð ungliðahreyfingar norska Verkamannaflokksins en talið er að hátt í 700 manns hafi verið á eyjunni í dag þegar karlmaður í gervi lögreglumanns hóf að skjóta á fólk í kringum sig. 22. júlí 2011 19:06
Byssumaðurinn sást í Osló fyrr í dag Maðurinn sem hóf skothríð á eyjunni Útey seinnipartinn sást í miðborg Osló skömmu áður en sprengja sprakk þar í dag. Hann er nú yfirheyrður af lögreglu sem kannar hvort hann beri einnig ábyrgð á árásunum í höfuðborginni, að því er fram kemur á vef norska dagblaðsins Verdens Gang. Árásarmanninum er sagður norrænn í útliti og hávaxinn. Lögreglan upplýsir ekki hvort maðurinn sé norskur ríkisborgari. 22. júlí 2011 20:14
Staðfest að sprengja fannst í Útey Ósprengdar sprengdur fundust í Útey í dag. Ekki er vitað hverskonar sprengjur er um að ræða. Þetta staðfesti lögreglustjórinn í Osló á blaðamannafundi sem var haldinn um klukkan ellefu að dönskum tíma í nótt. 22. júlí 2011 23:20
Viðbúnaður á Íslandi ekki verið aukinn vegna sprengjunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra er ekki með aukinn viðbúnað hér á landi vegna sprengjuárásarinnar í Osló. Guðrún Jóhannesdóttir, fulltrúi almannavarnadeildarinnar segir að það sé stjórnvalda að taka ákvörðun um slíkt. 22. júlí 2011 15:56
Einn maður handtekinn vegna skotárásarinnar Lögreglan í Noregi hefur handtekið mann sem grunaður er um að bera ábyrgð á skotárásinni í Utøya í Noregi í dag. 22. júlí 2011 17:22
Stoltenberg ætlaði að ávarpa ungliða á eyjunni Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs og leiðtogi Verkamannaflokksins, átti á morgun að flytja ávarp á eyjunni þar sem maður hóf að skjóta á ungmenni fyrr í dag. Gro Harlem Brundtland, fyrrverandi forsætisráðherra, heimsótti eyjuna fyrr í dag og Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs, var á eyjunni í gær. Hér má sjá viðtal við hann þar sem talar um að norska ríkisstjórnin styður stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna. 22. júlí 2011 17:51
Sprengja orsakaði sprenginguna - fleiri en einn látinn Lögreglan í Osló hefur staðfest að sprengja hafi orsakað öfluga sprengingu í miðbæ borgarinnar, en sprengingin olli mikilli eyðileggingu. Þetta kemur fram í beinni útsendingu á fréttastöðinni Sky. 22. júlí 2011 15:19
Kunna að vera fleiri sprengjur á svæðinu Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, lét þau orð falla í viðtali við Vísi að fleiri sprengjur kynnu að vera í Osló, á svæðinu þar sem miklar sprengingar urðu á öðrum tímanum í dag. 22. júlí 2011 15:50
Húsleit hjá byssumanninum Norska lögreglan gerði nú ellefta tímanum í kvöld húsleit í íbúð mannsins sem handtekinn var í Útey seinnipartinn í dag. Maðurinn fór klæddur eins og lögreglumaður í Útey og sagðist vera kominn þangað vegna sprengjunnar sem sprakk í Osló fyrr í dag. Skömmu síðar hóf hann að skjóta á fólk í kringum sig. Lögreglan hefur staðfest að 10 eru látnir en fullyrt er að tala fallinna muni hækka. Fyrr í kvöld var í norskum fjölmiðlum haft eftir sjónarvottum að allt að 30 væru látnir. 22. júlí 2011 22:54
Lögreglan staðfestir að minnst 10 hafi fallið í skotárásinni Við höfum fengið upplýsingar um það að tíu hafi fallið, en við búumst við því að tala fallinna munu hækka, segir norska lögreglan í fréttatilkynningu um skotárásina í Útey í dag. Norska ríkissjónvarpið og Verdens Gang höfðu eftir vitnum í dag að á þriðja tug manna væru látnir Norska Aftenposten segir að 17 manns hafi verið fluttir á sjúkrahús. "Miðað við það sem ég hef séð hafa minnst fjórir verið skotnir og drepnir,“ segir umdæmisstjóri ungliðahreyfingar norska Verkamannaflokksins í Þelamörk. 22. júlí 2011 22:07