Vilja bíla fólks sem fer í greiðsluaðlögun 27. maí 2011 07:30 Umboðsmaður skuldara telur kaupleigusamninga sambærilega öðrum bílalánum, og að skuldurum sé ekki heimilt að greiða af þeim sæki þeir um greiðsluaðlögun. Fréttablaðið/pjetur
Lánafyrirtækið SP fjármögnun hótar að rifta samningum um kaupleigu á bílum einstaklinga sem óskað hafa eftir greiðsluaðlögun eftir að nöfn þeirra birtast í Lögbirtingarblaðinu. Kaupleigusamningar teljast lán og því má fólk ekki greiða af bílunum. Í riftunarbréfum sem SP fjármögnun hefur sent fólki sem sótt hefur um greiðsluaðlögun kemur fram að fyrirtækið hafi óskað eftir lagabreytingu til þess að fólk sem sótt hefur um greiðsluaðlögun fái að greiða áfram af kaupleigusamningum. Við því hafi ekki verið orðið og því sjái fyrirtækið sér ekki annan kost en að rifta samningum við þá sem óski eftir greiðsluaðlögun. „Það síðasta sem við viljum gera er að taka bílana, við græðum ekkert á því,“ segir Kjartan Georg Gunnarsson, framkvæmdastjóri SP fjármögnunar. Hann segir aðeins standa til að rifta samningum fólks sem skuldi meira en andvirði bílanna. Verði samningunum ekki rift sé fólkið að keyra á bílum sem séu skráð eign fyrirtækisins án þess að greiða af þeim. Eigi það eitthvað í bílnum geti það keyrt þá áfram, en þá rýrni um leið eign þeirra. Hann bendir á að í langsamlega flestum tilvikum þurfi fólkið hvort eð er að skila bílunum eftir að það er komið í greiðsluaðlögun, hafi það ekki efni á að greiða af þeim. Kjartan segir að deilt sé um hvort fólk megi borga af kaupleigusamningunum á meðan það er í greiðsluskjóli eftir að hafa sótt um greiðsluaðlögun. Lögmenn SP telji að það sé heimilt, sé bíllinn nauðsynlegur til að fólk geti stundað sína vinnu. „Þessi framkvæmd laganna er verri fyrir kúnnana, hún leysir ekki málin til framtíðar,“ segir Kjartan. „En ef fólk þarf svo að skila bílnum hvort eð er á það ekki að keyra bílinn á okkar kostnað á meðan það er í greiðsluskjóli.“ Samkvæmt upplýsingum frá Umboðsmanni skuldara teljast kaupleigusamningar eins og hver önnur bílalán. Þeim sem sækja um greiðsluaðlögun er óheimilt að greiða af bílunum, enda væri þar með verið að gera upp á milli kröfuhafa. Þeim sem eru með bíla á kaupleigu eiga því ekki annan kost en að skila SP bílunum þrátt fyrir ákvæði laga um greiðsluaðlögun sem koma þeim sem sækja um aðlögun í greiðsluskjól. Niðurstaða umboðsmanns skuldara er sú að SP fjármögnun sé óheimilt að krefja þá sem eru með bíla á kaupleigusamningum um greiðslur, en það sé svo ákvörðun fyrirtækisins hvort það kjósi að rifta samningi við þá sem sótt hafa um greiðsluaðlögun. brjann@frettabladid.is thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira