Matur

Sumar­legt sjávar­rétta­salat með stökku hvít­lauks­brauði

Ingibjörg Lilja Þórmundsdóttir matgæðingur.
Ingibjörg Lilja Þórmundsdóttir matgæðingur. Myndir/Anton

Ingibjörg Lilja Þórmundsdóttir hefur alltaf haft ástríðu fyrir því að elda mat og bjóða heim í kvöldverð. Eftir að hafa oft og iðulega fengið spurningar um réttina sína ákvað hún að stofna matarblogg á netinu þar sem hún birtir uppskriftir ásamt myndum sem eiginmaður hennar tekur af matseldinni.

Slóð síðunnar er brizos.blogspot.com en Ingibjörg eldar oftar en ekki rétti úr sjávarfangi.

„Þetta er góð leið fyrir mig til að halda utan um uppskriftirnar mínar en þar sem ég hef verið búsett erlendis, maðurinn minn er frá Serbíu og við eigum fjölskyldu og vini utan Íslands, set ég uppskriftirnar líka inn á ensku svo allir geti notið," segir Ingibjörg.

Matarblogg Ingibjargar hefur vakið athygli, bæði fyrir flottar uppskriftir og svo fyrir fallegu ljósmyndirnar sem birtast af réttunum. Ingibjörg segir mikla umferð um síðuna svolítið hafa komið sér á óvart.

„Mér finnst þetta mjög gaman og ekki síst að fá fólk til að prófa að elda meira úr þessu frábæra hráefni sem fiskur og annað sjávarfang er," segir Ingibjörg. - jma

Sumarlegt sjávarréttasalat með stökku hvítlauksbrauði

Sjávarréttasalat fyrir fjóra

250 g hörpudiskur (lítil)

250 g rækja

400 g langa eða lúða

2 stk. límónur, safi og börkur

1 stk. rauður chili-pipar, fínsaxaður

1 stk. lítil rauð paprika, skorin smátt

1 stk. lítil gul paprika, skorin smátt

1 stk. hvítlauksrif, pressað eða fínsaxað

1 msk. engifer, fínt saxað

4 msk. góð ólífuolía

½ gúrka, kjarnhreinsuð, skorin smátt

1 búnt af fersku kóríander, saxað

4-5 stk. vorlaukar, fínt saxaðir

1 tsk. arómat

salt og pipar eftir smekk

Skerið fisk og hörpudisk í smáa teninga og setjið í skál með rækjum. Rífið límónubörkinn smátt, setjið út í blönduna og kreistið safann úr ávextinum yfir. Bætið við olíu, salti, pipar, arómati, chili, papriku og engifer.

Blandið því varlega saman við sjávarfangið. Látið blönduna í skálinni liggja í leginum í minnst tvær klukkustundir en því lengur því betra. Það getur verið gott að gera réttinn kvöldið áður en áætlað er að bera hann fram og setja þá lok yfir skálina eða plastfilmu yfir nóttina.

Rétt áður en rétturinn er brotinn fram er gúrku, vorlauk og kóríander bætt saman við blönduna en gott er að skilja örlítið eftir af kóríander til að skreyta með.

Fljótgert, stökkt hvítlauksbrauð

2 baguette-brauð

nokkrir dropar af ólífuolíu

1-2 hvítlauksrif

Skerið brauðið á ská í þunnar sneiðar. Leggið sneiðarnar á bökunarplötu, hellið nokkrum dropum af olíu yfir brauðið og grillið sneiðarnar í 200 gráðu heitum ofni í 2-3 mínútur á hvorri hlið.

Þegar brauðið er tekið út úr ofninum skal hver sneið nudduð með hvítlauksrifi til að fá hvítlauksbragðið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×