Guðmundur: Þessi leikur fer í sögubækurnar Henry Birgir Gunnarsson skrifar 2. maí 2011 07:00 Guðmundur fagnaði ákaft í leiknum um helgina. nordic photos/bongarts "
Þetta var alveg rosalegt dæmi. Hreint út sagt svakalegur leikur. Þessi leikur á eftir að fara í sögubækurnar," sagði kátur þjálfari Rhein-Neckar Löwen, Guðmundur Guðmundsson, við Fréttablaðið en hans lið komst í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir ótrúlegan sigur, 26-35, gegn franska liðinu Montpellier. Montpellier vann fyrri leikinn í Þýskalandi með tveggja marka mun og leiddi í hálfleik í seinni leiknum, 17-15. Síðari hálfleikur hjá Löwen var síðan hreint út sagt ótrúlegur því liðið vann hann 20-9. "Við vorum ekki nógu góðir í fyrri leiknum og mér fannst við eiga mikið inni. Ég hafði ekki miklar áhyggjur í hálfleik því ég hafði alltaf á tilfinningunni að þetta myndi koma hjá okkur og við keyra yfir þá. Vörnin var frábær í síðari hálfleik þar sem Guðjón Valur var í lykilhlutverki sem framliggjandi maður í 5-1 vörn. Það er svakalegt að fá bara 9 mörk á sig í síðari hálfleik gegn svona sterku liði á útivelli," sagði Guðmundur en það sauð upp úr í húsinu þegar reynt var að taka hljóðnemann af vallarþulnum sem var að tala í tíma og ótíma. Önnur lið sem komust í undanúrslit eru Ciudad Real, Hamburg og Barcelona. Kiel, lið Alfreðs Gíslasonar og Arons Pálmarssonar, steinlá gegn Barcelona, 33-36, á heimavelli þar sem Barcelona var betri aðilinn allan tímann. Vonbrigðatímabil Kiel heldur því áfram en liðið tapaði einnig fyrri leiknum gegn Barcelona á Spáni. Úrslitahelgin fer fram í Köln í lok mánaðarins.
Mest lesið Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sport Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Fótbolti Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Fótbolti „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Fótbolti Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Íslenski boltinn Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Fótbolti „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Fótbolti Neitar að róa með Normönnum Fótbolti Mbappé með tvö og Frakkar áfram eftir leik sem seinkaði um tvo tíma Fótbolti Ólympíumeistari féll á lyfjaprófi í þriðja sinn Sport Fleiri fréttir Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Sjá meira