Rhein-Neckar Löwen tapaði fyrir Barcelona Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. maí 2011 14:55 Ólafur Stefánsson skorar hér í leiknum í dag. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Barcelona komst í dag í úrslitaleik Meistaradeildarinnar eftir 30-28 sigur á Rhein-Neckar Löwen í undanúrslitaleik liðanna í Lanxess Arena í Köln. Barcelona lagði gruninn að sigrinum með því að skora fimm mörk í röð um miðjan seinni hálfleik. Ólafur Stefánsson skoraði fjögur mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen en Róbert Gunnarsson og Guðjón Valur Sigurðsson fengu ekkert að spreyta sig hjá Guðmundi Guðmundssyni. Uwe Gensheimer var markahæstur í liði Löwen með sjö mörk. Barcelona byrjaði leikinn mun betur og komst í 4-0. Ólafur Stefánsson skoraði fyrsta mark Rhein-Neckar Löwen eftir 7 mínútur og 15 sekúndur. Rhein-Neckar Löwen vann sig inn í leikinn og náði að jafna í 10-10 með tveimur hraðaupphlaupsmörkum í röð en Barcelona náði aftur tveggja marka forskoti, 12-10. Rhein-Neckar Löwen skoraði hinsvegar tvö síðustu mörk hálfleiksins og staðan var því 12-12 í hálfleik. Ólafur Stefánsson skoraði 2 mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen í fyrri hálfleik en Andy Schmid var markahæstur með þrjú mörk. Slawomir Szmal varði 10 skot í fyrri hálfleiknum. Rhein-Neckar Löwen byrjaði seinni hálfleikinn vel og var 19-18 yfir um hann miðjan. Þá náði Barcelona frábærum 7-1 spretti þar sem liðið skoraði meðal annars fimm mörk í röð. Rhein-Neckar Löwen náði að minnka muninn nokkrum sinnum í tvö mörk á lokakafla leiksins en tókst ekki að komast nær og spilar liðið því um þriðja sætið á morgun. Barcelona mætir annaðhvort HSV Hamburg eða BM Ciudad Real í úrslitaleiknum á morgun en þau spila undanúrslitaleik sinn seinna í kvöld.
Mest lesið Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Enski boltinn Lygileg níu marka veisla í París Fótbolti Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Körfubolti Uppgjörið: Haukar - Keflavík 86-70 | Haukar unnu sannfærandi sigur og komust yfir Körfubolti Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Enski boltinn „Stórkostlegur varnarleikur“ í níu marka veislu Fótbolti Þristur í lokin og Sindri eða Breiðablik í Bónus-deildina Körfubolti Diljá fljót að leggja upp fyrir mikinn Íslandsvin Fótbolti Arnar Freyr öflugur í evrópskum Íslendingaslag Handbolti Hver verður fljótastur að hlaupa míluna? Sport Fleiri fréttir Arnar Freyr öflugur í evrópskum Íslendingaslag Uppgjörið: ÍBV - Haukar 36-31 | Eyjakonur tryggðu sér sæti í úrslitum Stjörnurnar fá frí gegn Egyptum Uppgjörið: FH - Valur 31-25 | FH jafnaði einvígið í Krikanum Stórsigur Stjörnunnar knúði fram oddaleik Magdeburg aftur á sigurbraut eftir erfiða bikarhelgi Haukar fá enn frekari liðsstyrk frá HK Elvar og félagar luku tímabilinu með sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-23| Haukar tryggðu sér oddaleik í Eyjum Viktor Gísli áfram í stuði Uppgjörið: Valur - FH 37-33 | Umdeildur vendipunktur en Valsmenn yfir „Einvígið fer ekki á einum manni“ „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Reynir markahæstur í þungu tapi „Langt síðan að við vorum með svona marga uppalda“ ÍR segir miðil dreifa lygasögu um leikmenn Úrslitaeinvígið hefst í kvöld: „Verið mikill rússíbani“ „Þetta einvígi mun ráðast á þeim“ Einar Bragi þurfti að sætta sig við tap eftir tvær framlengingar Hetjuleg frammistaða Hauks dugði ekki til sigurs Berlín batt enda á sigurgöngu lærisveina Guðjóns Vals Grótta færist nær úrvalsdeild en fall blasir við Stjörnunni Óttast hraða Vals mest en býst við frábæru einvígi Uppgjörið: Valur - Fram 31-27 | Kústarnir sóttir í hálfleik Tvíframlengt í spennutrylli í Eyjum Anton og Jónas dæma hjá Orra í Meistaradeild Evrópu Hituðu upp fyrir úrslitaeinvígið á bensínstöð Grétar lætur staðar numið í Skógarselinu Rændir í miðju lyfjaprófi Stjörnukonur jöfnuðu metin Sjá meira