Dagur ræddi við þýska handknattleikssambandið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. maí 2011 09:30 Dagur hefur náð frábærum árangri með bæði Füchse Berlin og austurríska landsliðið. Nordic Photos / Bongarts
Dagur Sigurðsson segir að hann hafi átt í viðræðum um að taka við starfi landsliðsþjálfara Þýskalands á dögunum en að ekkert hafi enn komið úr þeim. Bob Hanning, framkvæmdarstjóri Füchse Berlin, staðfesti í þýskum fjölmiðlum í gær að Dagur hafi rætt við forráðamenn þýska handknattleikssambandsins en fréttir um þetta birtust fyrst í Þýskalandi í síðasta mánuði. „Ég var einn af þeim sem komu til greina en það er ekkert nýtt í stöðunni. Ég hef ekki fengið tilboð eða neitt slíkt,“ sagði Dagur í samtali við Vísi í morgun. „Þar að auki er þetta ekki í mínum höndum. Ég er með samning við Füchse Berlin í tvö ár í viðbót og þeir þyrftu að leggja blessun sína yfir þetta. Þýska handboltasambandið þyrfti því að klára málið fyrst þeim megin.“ Heiner Brand, núverandi landsliðsþjálfari, er með samning til 2013 en sterkar vísbendingar eru um að hann muni hætta nú í sumar. Aðrir sem voru orðaðir við stöðuna voru Martin Heuberger, núverandi aðstoðarmaður Brand, Velemir Petkovic, þjálfari Göppingen, og Staffan Olsson, landsliðsþjálfari Svíþjóðar. „Mér hugnast það alveg að gerast landsliðsþjálfari Þýskalands alveg eins og að halda áfram með Füchse Berlin. Það er mjög spennandi verkefni fram undan þar líka,“ sagði Dagur. „Það er alveg ljóst að það er ekki möguleiki að vera með bæði, það er alveg poittþétt. Maður þyrfti að hrökkva eða stökkva ef til kæmi.“ Füchse Berlin er þegar búið að tryggja sér þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð en liðið hefur komið mjög á óvart í þýsku úrvalsdeildinni í vetur. Dagur náði einnig frábærum árangri með austurríska landsliðið sem hann stýrði þar til í fyrra.
Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Hættir með landsliðinu Fótbolti María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Fótbolti Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Björgvin Karl og liðsfélagar hans í þriðja sætinu eftir fyrsta dag Sport Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira