Ísland lék í heimsklassa í seinni hálfleik og vann Austurríki Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. janúar 2011 19:11 Strákarnir fagna í leik á HM. Mynd/Valli
Strákarnir okkar sýndu á sér tvær hliðar í kvöld. Eftir að liðið var fimm mörkum undir í hálfleik, 16-11, átti það ótrúlega endurkomu í þeim síðari og vann leikinn með þriggja marka mun, 26-23. Það var ekki mikið sem gekk upp í fyrri hálfleik. Austurríkismenn tóku frumkvæðið í leiknum með góðum varnarleik og frábærri markvörslu Nikola Marinovic sem reyndist okkur einnig erfiður í leiknum í október í haust þegar Ísland tapaði fyrir Austurríki með fimm marka mun. Það vantaði mikið upp á í sókn, vörn og markvörslu hjá Íslandi. Guðmundur Guðmundsson lagaði það í hálfleik og dæmið snerist þá algerlega við. Austurríki komst ekki á blað fyrr en eftir rúmar tíu mínútur og Ísland komst yfir, 17-16. Leikurinn var í járnum í nokkrar mínútur eftir það en eftir að Ísland skoraði fjögurm örk í röð á sjö mínútna kafla var liðið komið með góða forystu. Henni héldu strákarnir allt til loka og fögnuðu að lokum innilega sigrinum. Það áttu þeir svo sannarlega skilið. Það sem skilaði fyrst og fremst sigrinum var ótrúlegur varnarleikur íslenska liðsins og frábær markvarsla Björgvins Páls sem varði 65 prósent allra þeirra skota sem á hann komu í seinni hálfleik. Ingimundur, Sverre og Ásgeir Örn voru sérstaklega öflugir og áttu mikinn þátt í sigrinum. Þórir Ólafsson var drjúgur og nýtti sín skot vel. Svo sýndi Alexander enn og aftur að hann er í allra fremsta flokki. Hann skoraði nokkur stórglæsileg mörk - eins og reyndar fleiri. Þetta var sigur liðsheildarinnar.Ísland er því með fullt hús stiga í B-riðli eftir fjóra leiki - 8 stig. Ungverjaland og Noregur eru með sex stig en þessi þrjú lið eru nú örugg áfram. Það ræðst á fimmtudaginn, þegar Ísland mætir Noregi, hvort að strákarnir fari með fjögur stig í milliriðilinn, þrjú (með jafntefli) eða tvö (með tapi).Ísland-Austurríki 26-23 (11-16)Mörk Íslands: Alexander Petersson 7 (9), Þórir Ólafsson 5/2 (6/2), Arnór Atlason 3 (6), Ólafur Stefánsson 3 (7/1), Snorri Steinn Guðjónsson 3 (8/1), Aron Pálmarsson 2 (4), Guðjón Valur Sigurðsson 2 (4), Róbert Gunnarsson 1 (3).Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 16 (33/2, 48%), Hreiðar Levy Guðmundsson 0 (6/1).Hraðaupphlaupsmörk: 9 (Þórir 3, Guðjón Valur 2, Arnór 2, Ólafur, Alexander)Fiskuð víti: 4 (Sverre jakobsson, Róbert, Kári Kristjánsson, Snorri Steinn)Brottvísanir: 10 mínútur.Smelltu hér til að opna Boltavaktina: Ísland - Austurríki.Úrslit, staðan og næstu leikir.
Mest lesið Donald Trump sást svindla á golfvellinum Golf Fékk meira að segja kveðju frá sínum helsta óvini Sport Musk og Schwarzenegger sendu Hafþóri Júlíusi hamingjuóskir Sport Viðurkennir að prumpið sem heyrðist um allan heim sé hans Golf Kóngafólkið eys lofi yfir enska liðið Fótbolti Spilaði og varð Evrópumeistari fótbrotin Fótbolti Brella Englendinga sem gæti hafa tryggt þeim EM-gullið Fótbolti Rashford mátaði treyjuna í leik sem átti ekki að fara fram Fótbolti Siggi Raggi for holu í höggi á vellinum þar sem Íslandsmótið fer fram Golf „Þeir refsuðu okkur í dag“ Fótbolti Fleiri fréttir Gull og brons á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar Annað risastórt kvennahandboltafélag gjaldþrota Strákarnir brunuðu í úrslitaleikinn Tjörvi Týr færir sig um set í Þýskalandi Ákvað að fara þegar faðir hans var rekinn Stelpurnar tryggðu sér fimmtánda sætið Stelpurnar réðu ekki við þær serbnesku Erlangen staðfestir komu Andra Grétar kveður Frakkland og fer til Grikklands Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Ásthildur skoraði átján mörk í stórsigri íslensku stelpnanna „Margt dýrmætt á þessum ferli“ Valskonur þurfa að vinna hollensku meistarana til að fá Íslendingaslag Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Giorgi Dikhaminjia aftur til Íslands Þorsteinn Gauti semur við Sandefjord Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Skoraði yfir sex hundruð mörk á tímabilinu Karlkyns leikmenn félagsins fá líka fæðingarorlof Ráku glænýjan leikmann félagsins fyrir að mæta á tónleika Aron ráðinn til FH Vilja dæma handboltamann í fimm ára bann Hafnaði ágengum Egyptum en er til í að taka við félagsliði Tæplega þriggja áratuga ferli Alexanders lokið Færeyingar unnu bronsið á HM U21 í handbolta Senda konurnar í Evrópukeppni en ekki karlana Aðeins Færeyingurinn öflugi hefur búið til fleiri mörk á HM en Elmar Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Sjá meira