Hreiðar með tilboð frá liði í Hvíta-Rússlandi Henry Birgir Gunnarsson skrifar 20. apríl 2011 07:00 Félög víða í Evrópu hafa sýnt Hreiðari Levý áhuga. Hann er hér í leik með Emsdetten.
Landsliðsmarkvörðurinn Hreiðar Levý Guðmundsson mun líklega hafa vistaskipti í sumar en samningur hans við þýska B-deildarfélagið Emsdetten rennur þá út. Félagið hefur ekkert rætt við Hreiðar um nýjan samning og því er hann farinn að líta í kringum sig. "Það eru margir leikmenn að renna út á samningi hjá félaginu en þeir vilja ekkert ræða málin fyrr en í sumar," segir Hreiðar Levý en útskýringin á því er líklega sú að félagið veit ekki fyrr en í sumar hver rekstrargrundvöllurinn verður fyrir næsta vetur. Markvörðurinn hefur ekki hug á því að bíða endalaust eftir tilboði frá félaginu. "Framtíðin er óráðin hjá mér en það eru þreifingar víða. Ég hef fengið fyrirspurnir frá liðum í Þýskalandi, Danmörku og Noregi og svo kom eitt óvænt frá Hvíta-Rússlandi frá liði sem Gintaras Savykunas er að þjálfa," sagði Hreiðar og bætti við að eitthvað mikið þyrfti að gerast til að hann tæki tilboði frá Hvíta-Rússlandi. "Það er mjög líklegt að ég fari frá Emsdetten og ég er að skoða mín mál í rólegheitum. Það þarf að vega og meta öll tilboð sem koma. Þetta hefur gengið hægt síðustu vikur en virðist vera að taka smá kipp núna," sagði Hreiðar, sem vill eðlilega ganga frá sínum málum sem fyrst. "Ég þarf að losa íbúðina mína hér 1. júní og það væri óneitanlega skemmtilegra að vita hvert ég ætti að fara í kjölfarið," sagði Hreiðar kíminn. Hjá Emsdetten eru einnig þeir Fannar Þór Friðgeirsson og Sigfús Sigurðsson. Patrekur Jóhannesson þjálfar liðið en hann hefur lýst því yfir að hann sé á leið heim.
Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti Dagskráin í dag: Umferðin klárast og allt gert upp í Stúkunni Íslenski boltinn Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Körfubolti Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Íslenski boltinn Enska landsliðið þurft að ferðast mest allra liða Fótbolti Uppgjör: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Sjá meira