Aron með fimm mörk þegar Kiel sló Füchse Berlin úr úr bikarnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. desember 2011 19:00 Aron Pálmarsson Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Alfreð Gíslason hafði betur á móti Degi Sigurðssyni í 16 liða úrslitum þýska bikarsins í Berlín í kvöld. THW Kiel vann Füchse Berlin 39-28 og tryggði sér sæti í átta liða úrslitunum. Kiel er ríkjandi bikarmeistari og hefur unnið þýska bikarinn fjórum sinnum á síðustu fimm árum. Aron Pálmarsson átti fínan leik og skoraði fimm mörk fyrir Kiel en þeir Momir Ilic og Kim Andersson voru markahæstir með sjö mörk hvor. Alexander Petersson skoraði fjögur mörk fyrir Füchse en þeir Bartlomiej Jaszka og Ivan Nincevic voru markahæstir með fimm mörk hvor. Kiel var á undan að skora frá byrjun en það var samt jafnt á öllum tölum þar til að Kiel komst í 7-5. Füchse Berlin jafnaði metin aftur í 7-7 en þrjú mörk í röð komu Kiel í 12-9 þegar 19 mínútur voru liðnar af leiknum. Kim Andersson fór á kostum í upphafi leiks og skoraði 6 af fyrstu 10 mörkum Kiel. Füchse minnkaði muninn aftur í eitt markm 15-14, en staðan var 17-14 fyrir Kiel í hálfleik eftir að Kiel-liðið skoraði tvö síðustu mörk hálfleiksins. Aron skoraði annað þeirra marka og var með 2 mörk í fyrri hálfleiknum en Alexander skoraði eitt mark í fyrri hálfleik. Füchse skoraði fyrsta mark seinni hálfleiks og minnkaði muninn í tvö mörk en Kiel svaraði með þremur mörkum í röð og leit aldrei til baka eftir það.
Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Uppgjörið: RFS - Vestri 4-1 | Þurfa kraftaverk í Reykjavík Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira