HM 2011: Rússar spila ekki um verðlaun Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. desember 2011 16:00 Evgeny Trefilov, hinn skrautlegi þjálfari Rússa. Mynd/Pjetur
Heimsmeistarar Rússlands, sem slógu stelpurnar okkar úr leik í 16-liða úrslitum HM í Brasilíu, töpuðu í dag fyrir Frökkum í fjórðungsúrslitum keppninnar, 25-23. Tíðindin eru óvænt enda höfðu Rússar haft mikla yfirburði í leikjum sínum til þessa á mótinu og margir reiknuðu með að þeir myndu fara alla leið í ár eins og svo oft áður. Rússland varð heimsmeistari í Kína árið 2009 en einnig árin 2001, 2005 og 2007. Liðið hlaut einnig silfur á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008 og hefur þar að auki þrívegis unnið til verðlauna á Evrópumeistaramótum. Stelpurnar okkar stóðu í Rússum í 40 mínútur á sunnudaginn en þá gáfu þær rússnesku í og unnu að lokum ellefu marka sigur, 30-19. Í dag var jafnræði með liðunum en Frakkar náðu að síga fram úr í upphafi seinni hálfleiks. Staðan var 24-19 þegar tíu mínútur voru til leiksloka og skoruðu þá Rússar fjögur mörk í röð og náðu að minnka muninn í 24-23. Frakkar juku aftur forystuna í tvö mörk og reyndist það síðasta mark leiksins. Alexandra Lacrabere var markahæst hjá Frökkum með fimm mörk en Emilia Turei skoraði flest fyrir Rússa, sjö talsins. Fjórðungsúrslitin fara öll fram í dag og verða tveir leikir í beinni á Stöð 2 Sport í kvöld. Frakkland mætir annað hvort Angóla eða Danmörku í undanúrslitum keppninnar en síðastnefndu tvö liðin mætast klukkan 16.30. Þátttöku Rússa er þó ekki lokið í Brasilíu en spilað verður upp á 5.-8. sæti keppninnar.Hér má sjá leikjayfirlit og úrslit á HM kvenna í Brasilíu.
Mest lesið Bauluðu á verðandi US Open meistara Golf Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Körfubolti Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Íslenski boltinn Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Enski boltinn Grænhöfðaeyjar komu aftur á óvart og sögulegt hjá Mo Salah og félögum Fótbolti Karlar sem skulda meðlag í Argentínu mega ekki horfa á Messi á HM Fótbolti Bröndby-bullur ráðast ekki bara á Víkinga heldur einnig á konur í hjólastól Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Íslenski boltinn Wyndham Clark er sigurvegari U.S. Open Golf „Vorum litlir í okkur á stóra sviðinu“ Fótbolti Fleiri fréttir Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Íslenski boltinn