Tvisvar byrjað á móti Þjóðverjum í milliriðli og tapað báðum leikjum stórt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. janúar 2011 15:15 Þjóðverjinn Andrej Klimovets skorar á móti Íslandi á EM í Noregi 2008. Mynd/AFP
Íslenska landsliðið hefur keppni í milliriðli í dag þegar strákarnir okkar mæta Þjóðverjum. Þetta er í þriðja skiptið sem Ísland mætir Þjóðverjum í fyrsta leik í milliriðli í stórmóti og í bæði hin skiptin hafa Þjóðverjar komist í 6-0 og unnið stóra sigra. Þessari tölfræði þurfa strákarnir að breyta í dag. Ísland tapaði 16-23 á móti Þjóðverjum í fyrsta leik í milliriðli á HM í Svíþjóð 1993. Þjóðverjar komust í 6-0 í leiknum og fyrsta mark íslenska liðsins (Júlíus Jónasson) kom ekki fyrr en eftir rúmlega 10 mínútna leik. Þjóðverjar voru 10-5 yfir í hálfleik, íslenska liðið minnkaði muninn í þrjú mörk í seinni en nær komust þeir ekki og Þjóðverjar unnu öruggan sigur. Júlíus Jónasson var markahæstur í íslenska liðinu með 5 mörk en Bernd Roos skoraði 6 mörk fyrir Þjóðverja. Ísland tapaði 27-35 á móti Þjóðverjum í fyrsta leik í milliriðli á EM í Noregi 2008. Þjóðverjar komust í 6-0 í leiknum og fyrsta mark íslenska liðsins (Guðjón Valur Sigurðsson) kom ekki fyrr en eftir 10 mínútna leik. Þýska liðið komst í 14-5 en íslenska liðið minnkaði muninn niður í 17-12 fyrir hálfleik. Ísland náði að minnka muninn niður í tvö mörk (21-23) þegar 17 mínútur voru eftir en Þjóðverjar skoruðu þá sex mörk gegn einu og stungu aftur af. Ólafur Stefánsson var markahæstur í íslenska liðinu með átta mörk en Holger Glandorf skoraði 9 mörk fyrir Þýskaland. Þrisvar unnið fyrsta leik í milliriðliVignir Svavarsson fékk harðar mótttökur hjá Þjóðverjum fyrir þremur árum.Mynd/AFPÍslenska landsliðið hefur tíu sinnum komist í milliriðil á stórmóti og þrisvar byrjað á sigri. Íslenska liðið vann sinn fyrsta leik í milliriðli á HM 2003 (Pólland), EM 2006 (Rússland) og á HM 2007 (Túnis). Strákarnir hafa þrisvar gert jafntefli í fyrsta leik í milliriðli og fjórum sinnum byrjað á tapi. Ísland tapaði fyrsta leik í milliriðli á HM 1986 (Ungverjaland), HM 1990 (Sovétríkin), HM 1993 (Þýskaland) og á EM 2008 (Þýskaland). Liðið gerði hinsvegar jafntefli í fyrsta leik á HM 1961 (Tékkóslóvakía), á EM 2002 (Frakkland) og á EM 2010 (Króatía) Guðmundur Guðmundsson hefur þrisvar stýrt íslenska liðinu í fyrsta leik í milliriðli og liðið hefur ekki tapað, gerði 26-26 jafntefli við Krótata á EM í Austurríki í fyrra og 26-26 jafntefli við Frakka á EM 2002 og vann síðan 33-29 sigur á Pólverjum á HM í Portúgal 2003.
Mest lesið DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Fótbolti Treyja Pelé frá úrslitaleik HM 1958 seldist á 617 milljónir Fótbolti Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn Sjáðu tvíburana í FH búa til mark í fyrstu tilraun Íslenski boltinn Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Íslenski boltinn Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti Tveir öflugir Spánverjar æfðu ekki með restinni af liðinu Fótbolti Fleiri fréttir Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Sjá meira