Nítján ár síðan Ísland fór síðast á stórmót án Ólafs Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. nóvember 2011 07:00 Ólafur Stefánsson sendir inn á línuna í leik á móti Frökkum. Nordic Photos / Getty Images
Lengi hefur verið tvísýnt um þátttöku landsliðsfyrirliðans Ólafs Stefánssonar á Evrópumótinu í Serbíu í byrjun næsta árs. Langvinn hnémeiðsli héldu honum frá keppni með danska liðinu AG fyrstu þrjá mánuði ársins en þegar hann sneri aftur í síðustu viku glöddust íslenskir handboltaáhugamenn enda töldu flestir að hann yrði með í janúar. Ólafur sjálfur er hins vegar farinn að tala um það opinberlega að best sé fyrir hann að taka sér hvíld á EM og einbeita sér að því að koma sér í gott form fyrir verkefni vorsins með AG og ekki síst hjá íslenska landsliðinu sem mun reyna að vinna sér sæti á Ólympíuleikunum í forkeppni leikanna í apríl. Það þarf að fara langt aftur til þess að finna stórmót hjá íslenska karlalandsliðinu þar sem Ólafur Stefánsson er ekki með. Það gerðist nefnilega síðast á HM í Svíþjóð árið 1993 og síðan þá hefur Ólafur tekið þátt í fimmtán stórmótum í röð. Gengi íslenska liðsins hefur líka verið frábært á þessum tíma. Ólafur hefur verið í aðalhlutverki á fjórum af fimm bestu stórmótum íslenska landsliðsins og Ólafur hefur verið með í sjö af ellefu stórmótum þar sem íslenska landsliðið hefur verið meðal þeirra sjö hæstu. Ólafur var reyndar ekki eins áberandi og áður á síðustu tveimur stórmótum og flestum mótum þar á undan en mikilvægi hans er þó óumdeilanlegt. Hann er andlegur leiðtogi strákanna og hefur enn alla burði til þess að gera út um leiki með útsjónarsemi sinni og reynslu. Ólafur hefur leikið 101 af 106 leikjum íslenska landsliðsins á stórmótum frá og með árinu 1995 og hefur því aðeins misst af fimm leikjum á HM, EM á Ól á þessum 19 árum. Ólafur hefur skorað 483 mörk í þessum 101 leik eða 4,8 mörk að meðaltali í leik. Hann skoraði fimm mörk að meðaltali í leik á átta stórmótum í röð frá 2001 til 2007 og hefur skorað fjögur mörk eða meira á tíu þessara móta. Það verður örugglega skrýtið fyrir íslenska handboltaáhugamenn að sjá engan Ólaf Stefánsson meðal strákanna okkar í Serbíu í janúar. Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari sefur örugglega ekki betur og ætli íslenska liðið sér langt á mótinu þurfa aðrir leikmenn liðsins að fylla í stórt skarð á hægri vængnum. Það kemur samt alltaf að þeim tímapunkti að landsliðsskórnir hans Ólafs fara upp í hillu. EM í Serbíu gæti því verið góð æfing fyrir þann tíma þegar besti handboltamaður Íslandssögunnar kveður íslenska landsliðið endanlega.
Mest lesið Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Íslenski boltinn UEFA lofar að hafa engin drykkjarhlé Fótbolti Bauluðu á verðandi US Open meistara Golf Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Körfubolti Einum mánuði yngri en Eiður Smári Íslenski boltinn Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Enski boltinn Ein vinsælasta golf YouTube-stjarna heims í Vestmannaeyjum Golf Argentína - Austurríki | Messi gæti slegið metið Fótbolti Lars Lagerbäck veit hvað er stærsta vandamál sænska liðsins Fótbolti Bröndby-bullur ráðast ekki bara á Víkinga heldur einnig á konur í hjólastól Fótbolti Fleiri fréttir Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Sjá meira