Hátt í hundrað ný tilfelli á hverju ári 28. nóvember 2011 10:30 Búlimía er algengari greining en anorexía meðal sjúklinga sem eru 18 ára og eldri og leita sér hjálpar á Hvítabandi Landspítalans.fréttablaðið/stefán
Nýgengi átröskunarsjúkdóma hér á landi hefur haldist svipað undanfarin fimm ár. Síðan í janúar síðastliðnum hafa 79 einstaklingar leitað til geðdeildar Landspítalans vegna átröskunar, segir Sigurlaug María Jónsdóttir, sálfræðingur í átröskunarteymi spítalans á Hvítabandinu. Árið 2008 jókst nýgengið verulega, en þá leituðu fleiri en 100 einstaklingar eftir greiningu og meðferð. Teymið sinnir átröskunarsjúklingum sem eiga við anorexíu og búlimíu að stríða. Sigurlaug segir um helming þjást af búlimíu, en um 10 til 20 prósent af anorexíu. Um 30 til 40 prósent fá greininguna óskilgreinda átröskun. Hún segir það vart þekkjast hér á landi að sjúklingar láti lífið úr átröskunarsjúkdómum. „Það þekkist ekki hér að banameinið sé átröskun eða anorexía. Aðrir þættir sem fylgja í kjölfarið, eins og kvíði, þunglyndi, áfengis- og vímuefnavandi, sjálfsskaðandi hegðun og vandamál við félagsleg samskipti, geta leitt til mikillar vanlíðunar og sjálfsvíga í einstaka tilfellum. Því er nauðsynlegt að vinna samhliða með þetta allt.“ Um 70 einstaklingar eru í einhvers konar meðferð á Hvítabandinu í dag. Sumir koma tvisvar til þrisvar í viku, aðrir eru í reglubundnu eftirliti og eftirfylgd. Þá er aðstandendum sjúklinga einnig sinnt markvisst með viðtölum og meðferð, en um 15 til 20 fjölskyldur eru í tengslum við deildina. Komur átröskunarsjúklinga á BUGL hafa verið á bilinu 14 til 28 á síðustu tíu árum. Komur í ár hafa verið heldur fleiri en í fyrra, segir Margrét Gísladóttir, geðhjúkrunar- og fjölskyldufræðingur og teymisstjóri átröskunarteymis á göngudeild. Líkt og á Hvítabandinu leggjast fæstir sjúklinganna inn á spítalann en mikill meirihluti þeirra er stúlkur. Aldursbilið er frá 13 til 17 ára, þó að í sumum tilvikum séu sjúklingar yngri, en það er ekki algengt. Fleiri sjúklingar fá greininguna anorexíu en búlimíu á BUGL. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Hvalur háði hálftíma dauðastríð Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Lögreglan leitar að Cezary Innlent Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Innlent Tveimur sagt upp á Bifröst Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Fleiri fréttir Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Lögreglan leitar að Cezary Aflvana togari hættulega nálægt landi Vegum lokað og bílar taldir Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Segir verk Þórbergs enn ótrúlega lifandi „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Stærsta kókaínmál Íslandssögunnar og ráðherra sakar starfsmenn Hvals um fíflaskap Lokaeinkunnirnar vísbending um ósamræmda einkunnagjöf Komu slösuðum til bjargar í Drangey Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni Tímamót hjá Klettaskóla: „Allir mjög peppaðir“ Sjá meira