Ungverjar tryggðu sér síðasta sætið í forkeppni ÓL Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. janúar 2011 18:31 Mynd/AFP
Ungverjar unnu þriggja marka sigur á Pólverjum, 31-28, í leiknum um sjöunda sætið á HM í handbolta í Svíþjóð. Ungverjar tryggðu sér þar með sæti í forkeppni Ólympíuleikanna á næsta ári en Pólverjar sitja eftir með sárt ennið. Ungverjar byrjuðu mótið á því að steinliggja fyrir Íslendingum en komu sterkir til baka og enda að lokum í sjöunda sæti eftir sigra á Þjóðverjum og Pólverjum í þremur síðustu leikjum sínum. Ungverjar enduðu í sjötta sæti á HM í Króatíu fyrir tveimur árum. Ungverjar byrjuðu vel og komust í 3-0 eftir fjórar mínútur en það tók Pólverja aðeins 92 sekúndur að jafna í 3-3 eftir að þeir brutu loksins ísinn eftir 5 mínútur og 42 sekúndur. Pólverjar komust síðan í 5-4, voru búnir að ná tveggja marka forskoti, 7-5, eftir þrettán mínútna leik og fjögurra marka forskoti, 12-8, eftir 20 mínútur. Ungverjar voru ekki á því að gefa sig, skoruðu sex mörk í röð á sjö mínútna kafla og breyttu stöðunni úr 10-14 í 16-14 sem var staðan í hálfleik. Ungverjar létu ekki þar við standa heldur skoruðu þrjú fyrstu mörk seinni hálfeiksins og voru þá komnir með 19-14 forskot og búnir að skora níu mörk í röð. Pólverjar skoruðu loksins mark þegar þeir minnkuðu muninn í 19-15 en þeir höfðu þá ekki náð að skora í tæpar 14 mínútur. Ungverjar gáfu ekkert eftir, náðu mest fimm marka forskoti og unnu að lokum með þriggja marka mun.
Mest lesið DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Fótbolti Treyja Pelé frá úrslitaleik HM 1958 seldist á 617 milljónir Fótbolti Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Íslenski boltinn „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Enski boltinn Sjáðu tvíburana í FH búa til mark í fyrstu tilraun Íslenski boltinn Tveir öflugir Spánverjar æfðu ekki með restinni af liðinu Fótbolti Harður gagnrýnandi Trumps við hlið hans á úrslitaleik HM Fótbolti Fleiri fréttir Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Sjá meira