Aron með 4 mörk þegar Kiel komst í bikarúrslitin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. maí 2011 12:50 Aron Pálmarsson Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Aron Pálmarsson skoraði fjögur mörk í fimm marka sigri Kiel á Göppingen, 28-23, í undanúrslitum þýska bikarsins í handbolta sem fram fór í Color Line Arena í Hamburg í dag. Kiel mætir annaðhvort Flensburg eða Rhein-Neckar Löwen í úrslitaleiknum en seinni undanúrslitaleikurinn er nú að hefjast í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Kiel á ekki lengur möguleika á því að vinna þýska meistaratitilinn eða Meistaradeildina og er þetta því eini bikarinn sem félagið getur tekið á þessu tímabili. Aron fékk ekki mikið að spila hjá Alfreð Gíslasyni, þjálfara Kiel, í fyrri hálfleik en nýtti tækifæri sitt mjög vel þegar hann fékk það í seinni hálfleik. Kiel var 15-13 yfir í hálfleik en Göppingen jafnaði leikinn í upphafi seinni hálfleiks. Aron skoraði þrjú mörk á fimm mínútna kafla þegar Kiel-liðið breytti stöðunni úr 22-20 í 26-21 og eftir það var ljóst hverjir væru að fara í úrslitaleikinn. Thierry Omeyer varði frábærlega í marki Kiel en markahæstu leikmenn liðsins voru þeir Christian Zeitz, Filip Jicha og Dominik Klein sem skoruðu allir fimm mörk. Kiel var að komast í bikarúrslitaleikinn í þrettánda sinn í sögu félagsins en félagið getur á morgun unnið bikarinn í sjöunda sinn og jafnframt í fjórða sinn á síðustu fimm árum. Alfreð þjálfaði Kiel-liðið þegar það varð bikarmeistari fyrir tveimur árum.
Mest lesið Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Fámáll um orðrómana Íslenski boltinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Handbolti Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin Enski boltinn „Sýnir hvað þau eru þakklát fyrir það sem ég gaf klúbbnum“ Fótbolti „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ Íslenski boltinn Sjokk fyrir Róbert: „Heyrist hátt brak og maður varð hræddur“ Fótbolti Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Enski boltinn Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Enski boltinn Fleiri fréttir Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Sjá meira