Rhein-Neckar Löwen komst ekki í bikarúrslitaleikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. maí 2011 14:45 Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Rhein-Neckar Löwen. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Það verður Flensburg-Handewitt sem spilar til úrslita um þýska bikarinn í handbolta á móti Kiel á morgun eftir að Flensburg sló út Guðmund Guðmundsson og lærisveina hans í Rhein-Neckar Löwen í dag. Flensburg vann leikinn 22-20. Ólafur Stefánsson skoraði fimm mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen og Róbert Gunnarsson var með tvö mörk. Guðjón Valur Sigurðsson spilaði líka með en aðallega í vörninni. Ólafur var allt í öllu í sóknarleik Löwen í seinni hálfleik og kom þá að flestum mörkum liðsins, skoraði 4 mörk sjálfur og átti fjölda stoðsendinga þar á meðal tvær inn á Róbert á línunni. Rhein-Neckar Löwen var með forystu í byrjun en Flensburg skoraði fjögur mörk í röð á níu mínútna kafla, komst yfir í 6-4 og var eftir það með frumkvæðið fram að hálfleik. Ólafur klikkaði á þremur fyrstu skotum sínum í leiknum en skoraði sitt fyrsta mark þegar hann minnkaði muninn í 9-8. Flensburg var síðan 10-8 yfir í hálfleik en það var ekki síst fyrir frábæra markvörslu Sören Rasmussen sem varði 10 bolta í fyrri hálfleik. Rhein-Neckar Löwen byrjaði seinni hálfleikinn vel og náði strax að jafna leikinn og svo að komast yfir í 13-12. Liðsmenn Flensburg náðu þá öðrum frábærum spretti þegar þeir breyttu stöðunni úr 15-15 í 19-16 á sex mínútna kafla en voru því í góðum málum þegar tíu mínútur voru eftir. Löwen skoraði hinsvegar næstu þrjú mörk og jafnaði metin í 19-19 þegar fimm mínútur voru eftir en Flensburg-liðið var fljótt að ná forskoti á ný. Thomas Mogensen kom Flensburg í 20-19, Sören Rasmussen varði síðan sitt 19. skot í leiknum og Tamas Mocsai kom Flensburg í 21-19. Uwe Gensheimer minnkaði muninn í 21-20 af vítalínunni en Löwen missti síðan mann útaf í tvær mínútur og því var róðurinn þungur á lokamínútunum. Lasse Svan Hansen tryggði Flensburg síðan sigurinn þegar hann kom Flensburg í 22-20 þegar 27 sekúndur voru eftir.
Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira