Fikrar sig upp á yfirborðið 1. september 2011 22:00
Þrátt fyrir ungan aldur spannar ferill Ryans Gosling næstum tuttugu ár, en hann verður að teljast einn eftirsóttasti leikari Hollywood um þessar mundir. Hann hefur að mestu leyti eytt tíma sínum í óháða kvikmyndageiranum en er smám saman að fikra sig upp á yfirborðið. Ryan Gosling leikur aðalhlutverkið í Crazy Stupid Love sem verður frumsýnd um helgina, en þetta er fyrsta gamanmynd leikarans. Gosling leikur þar ungan glaumgosa sem reynir að kenna hinum fráskilda Cal Weaver, sem leikinn er af Steve Carell, að njóta lífsins upp á nýtt. Julianne Moore, Emma Stone, Marisa Tomei og Kevin Bacon leika einnig stór hlutverk í myndinni, sem fengið hefur afbragðsgóða dóma. Ryan Gosling er fæddur í nóvember 1980. Hann byrjaði snemma að leika og var meðal annars hluti af Mikka mús-klúbbnum þar sem Christina Aguilera, Britney Spears og Justin Timberlake voru meðal samstarfsfélaga hans Christina Aguilera, Britney Spears og Justin Timberlake. Gosling ákvað hins vegar að feta leiklistarbrautina þrátt fyrir að tónlistin togi í hann af og til, hann er meðal annars í hljómsveitinni Dead Man's Bones sem gaf út samnefndan disk árið 2009. Þrátt fyrir að Gosling teljist meðal kynþokkafyllstu karlmanna heims átti hann síður en svo auðvelda æsku; hann var mikið lagður í einelti og að endingu ákváðu foreldrar hans að taka hann úr skóla og kenna honum heima. Gosling hefði vel getað fest í hlutverki hjartaknúsarans eftir að hafa grætt hverja einasta unglingsstúlku í kvikmyndinni The Notebook. En Gosling ákvað að halda aðra leið; hann tók að sér hlutverk sérvitringa og utangarðsmanna í óháðum kvikmyndum. Hann sýndi stjörnuleik í kvikmyndunum Half Nelson, sem hann var tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir, og Lars and the Real Girl auk Blue Valentine. Gosling hafði samþykkt að leika í kvikmynd Dags Kára, The Good Heart, en annríkið eftir Óskarsverðlaunatilnefninguna kom í veg fyrir samstarfið. Leikarinn virðist hins vegar smám saman vera að fikra sig upp á yfirborð Hollywood-markaðs-vélarinnar; hann leikur á móti heilum her stórleikara í The Ides of March en þar má meðal annars finna stjörnur á borð við George Clooney, Marisu Tomei, Paul Giamatti og Philip Seymour Hoffman. freyrgigja@frettabladid.is
Lífið Mest lesið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Sahara Ray látin Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Menning Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Fleiri fréttir Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda Sjá meira