Þýsku dómarabræðurnir létust í bílslysi í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. nóvember 2011 21:23 Bernd Methe og Reiner Methe. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Þýsku dómararnir Bernd og Reiner Methe létust í kvöld í bílslysi á leið sinni til Balingen þar sem þeir áttu að dæma leik Balingen og Magdeburg í þýsku úrvalsdeildinni. Þetta kom fram í þýskum fjölmiðlum í kvöld. Bíll þeirra fór yfir á öfugan vegarhelming og lenti framan á trukk. Þetta er mikið áfall fyrir þýskan handbolta og dómarastéttina í heiminum. Leik HBW Balingen-Weilstetten og SC Magdeburg var að sjálfsögðu frestað en Björgvin Páll Gústavsson er leikmaður Magdeburg. Þeir Bernd og Reiner Methe áttu einnig að dæma leik RK Krim Ljubljana og Larvik HK í Meistaradeild kvenna á sunnudaginn. Bernd og Reiner voru tvíburar og 47 ára gamlir. Þeir eru í hópi fremstu dómarapara heims og hafa dæmt saman frá árinu 1988. Þeir hafa verið með alþjóðaréttindi síðan árið 1998 og hafa dæmt saman 206 alþjóða leiki þar af marga með íslenska landsliðinu. Rúta Magdeburg-liðsins keyrði framhjá slysstaðnum en Björgvin Páll og félagar vissu ekki fyrr en eftir á að þetta hafi verið bíll dómaranna. „Heimurinn er hruninn hjá okkur leikmönnum. Við þekktum tvíburana mjög vel," sagði markvörðurinn Gerrie Eijlers, liðsfélagi Björgvins Páls hjá Magdeburg, við þýska fjölmiðla í kvöld.
Mest lesið Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum Körfubolti Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Enski boltinn Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn „Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri“ Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira