Danir tryggðu bæði sér og Svíum sæti í undanúrslitum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. janúar 2011 20:51 Mikkel Hansen lék vel í kvöld. Mynd/AFP
Danir unnu sjöunda leikinn sinn í röð á HM í handbolta í kvöld þegar liðið vann Argentínumenn með sjö marka mun, 31-24. Danmörk og Svíþjóð spila um efsta sætið í milliriðlinum á þriðjudaginn en þau eru bæði komin áfram eftir úrslit kvöldsins. Danir eru komnir í undanúrslit þrátt fyrir að ein umferð sé enn eftir í milliriðlinum og sigur þeirra á Argentínu þýðir einnig að ekkert lið getur náð Svíum sem unnu Króata fyrr í dag. Pólverjar unnu Serba 27-26 en geta aðeins náð Svíum að stigum og Svíar verða alltaf ofar, verði þau jöfn, þökk sé 24-21 sigri á pólska liðinu í lokaleik þeirra í riðlakeppninni. Danmörk og Svíþjóð spila um efsta sætið í milliriðlinum á þriðjudaginn. Danir tóku strax frumkvæðið á móti Argentínumönnum, komust í 5-2, 7-3, 10-5, 13-7 og voru 17-12 yfir í hálfleik. Danir skoruðu tvö fyrstu mörk seinni hálfleiks og voru þá komnir sjö mörkum yfir. Argentínumenn gáfust þó aldrei upp og náðu alltaf að minnka muninn aftur. Þeir skoruðu meðal annars þrjú mörk í röð og breyttu stöðunni úr 24-19 í 24-22. Danir sýndu þá styrk sinn, skoruðu fimm mörk í röð og gerðu út um leikinn. Mikkel Hansen skoraði 7 mörk fyrir Dani þarf af sex þeirra í fyrri hálfleik. Þeir Anders Eggert og Lasse Svan Hansen skoruðu báðir 6 mörk og Niklas Landin kom inn í markið í lokin og varði 7 af 9 skotum sem komu á hann. Karol Bielecki tryggði Pólverjum sigur á Serbum þegar hann skoraði sigurmarkið ellefu sekúndum fyrir leikslok en leikurinn var æsispennandi þar sem liðin skiptust á að hafa forustuna. Pólverjar eru með fjögur stig í riðlunum en Serbar hafa bara eitt sitg. Tomasz Tluczynski skoraði 10 mörk úr 11 skotum fyrir Pólverja og Karol Bielecki og Marcin Lijewski skoruðu báðir fjögur mörk. Marko Vujin skoraði 11 mörk fyrir Serba.
Mest lesið Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Íslenski boltinn Fámáll um orðrómana Íslenski boltinn „Sýnir hvað þau eru þakklát fyrir það sem ég gaf klúbbnum“ Fótbolti Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Handbolti Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin Enski boltinn Leedsarar léku sér að Newcastle Enski boltinn „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Sjá meira