Læknafélagið á móti takmörkun tóbakssölu við ÁTVR 31. maí 2011 20:15 Birna Jónsdóttir, formaður Læknafélags Íslands. Mynd/ Valli
Birna Jónsdóttir, formaður Læknafélagsins, segir það vera mat félagsins að hugmyndum um færa alla tóbakssölu í ÁTVR beri að hafna. Hún bendir á þá staðreynd að margir óvirkir fíklar í önnur efni noti tóbak og segir að það væri tillitsleysi að senda óvirka alkóhólista inn í áfengisverslanir að kaupa sér sígarettur. Í aðsendri grein sem birtist á Vísi fyrr í dag gagnrýnir Teitur Guðmundsson, læknir, þær hugmyndir sem lagðar hafa verið fram á Alþingi um takmörkun sölu tóbaks við apótek. Í greininni segir hann fíkniefni á borð við tóbak ekkert erindi eiga inn í apótek, þar sem þeim yrði stillt upp við hliðina á vörum sem hafa lækningarmátt eða er á einhvern hátt ætlað að bæta heilsu þeirra sem þær kaupa. Hann segir einnig að ef ætlunin með tillögunni sé að gera aðgengið að tóbaki erfiðara, væri það betur geymt bak við kassann í ÁTVR þar sem opnunartímar væru styttri og útibú færri. Birna hafnar þessu og tekur fram að tillagan um að færa tóbakssöluna í apótek renni beint undan rifjum læknafélagsins en fjallað hafi verið um málið á aðalfundi félagsins þar sem meirihlutinn hafi fallist á þessa nálgun. Birna tekur fram að nikótín sé nú þegar selt í apótekum í mismunandi formum en það sé til þess ætlað að þeir sem séu í baráttu við fíknina geti svalað henni. Nái frumvarpið fram að ganga munu læknar ekki ávísa tóbaki nema sá sem leiti eftir lyfseðlinum hafi sannarlega reynt að hætta. Birna bætir við að Teitur Guðmundsson, sem sé ekki sérfræðingur í fíknarlækningum, megi hafa sína skoðun en ítreka beri að hún sé ekki skoðun Læknafélagsins.
Mest lesið Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Innlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Innlent Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Innlent Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Innlent Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Innlent Fleiri fréttir Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Skjálftahrina í Mýrdalsjökli „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Þurfa aftur að rannsaka mál tveggja barna á Múlaborg Sorglegt að vera einungis tala á blaði Sjá meira