Handbolti

Við vorum vel undirbúnir

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þórir skoraði sjö mörk úr sjö skotum í gær.
Þórir skoraði sjö mörk úr sjö skotum í gær. Fréttablaðið/Valli

Hornamaðurinn Þórir Ólafsson átti sannkallaðan stórleik fyrir íslenska landsliðið gegn Japan í gær. Hann skoraði sjö mörk úr sjö skotum og virðist vart geta klúðrað skoti.

„Við vorum undirbúnir fyrir hraðann þeirra en við vorum enn grimmari en þeir. Sóttum á þá og sýndum hvað við getum. Við brut­um sóknirnar þeirra fljótt niður. Ef þeir fá að spila eins hratt og þeir vilja þá eru þeir hættulegir. Við hleyptum þeim aldrei í sinn hraða,“ sagði Þórir og mælti réttilega. Japan komst aldrei í að spila sinn leik og strákarnir refsuðu með frábærum hraðaupphlaupum.

„Bjöggi og Hreiðar vörðu líka vel og þessi vörn og markvarsla skilaði okkur 14 marka forskoti í hálfleik. Þó svo við hefðum slakað aðeins á klónni í síðari hálfleik var sigurinn aldrei í hættu. Menn voru aðeins að spara sig enda erfiður leikur fram undan,“ sagði Þórir en Guðmundur þjálfari var augljóslega búinn að undirbúa liðið vel.

„Við vorum undirbúnir og vorum ekki heldur að vanmeta þá. Það má ekki leika sér að eldinum eins og Austurríki fékk að kynnast,“ sagði Þórir en Ísland mætir einmitt Austurríki í dag.

„Það verður allt öðruvísi leikur og við þurfum að vera góðir enda ekki spilað nógu vel gegn þeim í síðustu leikjum. Nú er kominn tími á að vera rétt stemmdir gegn Austurríki,“ sagði Þórir en ætlar hann ekki að klúðra skoti á mótinu? „Það er svo leiðinlegt að klúðra að ég nenni ekkert að vera í því,“ sagði Þórir léttur.

Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari var að vonum himinlifandi með sína menn eftir leikinn.

„Þetta var frábærlega vel spilað. Varnarleikurinn var frábær og það er magnað að spila svona framarlega á lið eins og Japan og sjá að við erum jafnvel sneggri en þeir. Allt liðið á mikið hrós skilið fyrir alla þætti í dag en það klikkaði ekkert hjá okkur,“ sagði Guðmundur kátur en hann veit að í dag bíður mjög erfiður leikur gegn Austurríki sem valtaði yfir íslenska liðið í október á síðasta ári.

„Sá leikur verður gríðarlega erfiður og við verðum að mæta líka vel undirbúnir í þann leik. Við förum því beint upp á hótel að undirbúa okkur því það er lítill tími til stefnu. Þetta verkefni gekk vel en við munum ekki dvelja við þennan leik.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×