Vignir tryggði Hannover-Burgdorf afar óvæntan sigur á Löwen Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. september 2011 21:09 Vignir Svavarsson. Mynd/Arnþór
Guðmundur Guðmundsson mátti horfa upp á ótrúlegt tap með liði sínu, Rhein-Neckar Löwen, í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld aðeins nokkrum dögum eftir að liðið lagði meistara Hamburg. Hannover-Burgdorf vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu í kvöld með 33-32 sigri á Löwen en Vignir Svavarsson skoraði sigurmark leiksins þegar tæp mínúta var til leiksloka. Vignir skoraði alls þrjú mörk í leiknum en Hannover-Burgdorf hafði fjögurra marka forystu í hálfleik, 19-15. Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði einnig þrjú mörk fyrir liðið en Hannes Jón Jónsson komst ekki á blað. Róbert Gunnarsson skoraði eitt mark fyrir Löwen en Uwe Gensheimer var markahæstur með tólf mörk. Löwen er enn við topp deildarinnar með sex stig ásamt Kiel, Melsungen og Füchse Berlin sem eiga öll leik til góða. Hannover-Burgdorf lyfti sér upp úr fallsæti með sigrinum. Úrslit dagsins: Lemgo - Lübbecke 27-25 Melsungen - Gummersbach 33-26 Göppingen - Flensburg 23-25 Hannover-Burgdorf - Rhein-Neckar Löwen 33-32
Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira