HM 2011: Karen veðjaði ekki um hver myndi skora fyrsta HM markið Sigurður Elvar Þórólfsson í Santos skrifar 3. desember 2011 21:29 „
Þetta var það síðasta sem við hugsuðum fyrir leikinn," sagði Karen Knútsdóttir þegar hún var spurð að því hvort það hefði verið veðmál í gangi hjá íslenska liðinu hver myndi skora fyrsta mark Íslands í þessari keppni. Karen skrifaði nafn sitt í sögubækurnar með því að koma Íslendingum yfir 1-0 með marki á 3. mínútu í mögnuðum 22-21 sigri gegn Svartfjallalandi. „Handboltaleikir eru alltaf eins. Þeir eru í 60 mínútur og Gústi þjálfari var búinn að tala við mig fyrir leikinn að ég þyrfti að skjóta meira. Við misstum Rakel út úr liðinu. Hún er frábær skotmaður og leiðtogi. Og það er gott að hafa hana og hún hjálpar mér mikið," sagði Karen eftir leikinn í kvöld. „Ég held að þessi sigur hafi komið öllum á óvart. Okkur líka. Þetta er aðeins að síast inn núna," sagði Karen en faðir hennar Knútur Hauksson er formaður Handknattleikssambands Íslands. Foreldrar Karenar eru bæði hér í Brasilíu og segir leikstjórnandinn að hún sé vön því að hafa þau með við slíkar aðstæður. „Pabbi þarf að vera en þau hafa alltaf fylgt mér. Það er bara frábært að hafa þennan stuðning." Karen er í vafa um að landsliðið gefi íslensku þjóðinni smá birtu í dimmum desembermánuði. „Vonandi er þetta skemmtileg afþreying að horfa á okkur í desemberruglinu heima. Við tókum virkilega stórt skref með því að komast á EM og nú HM: Vonandi eru margar stelpur sem eru að líta upp til okkar og hafa trú á sjálfum sér og halda áfram að æfa. Framtíðin er bara björt.
Mest lesið Sofnaði í aftursætinu á leið á Ólympíuleikana og komst aldrei alla leið Sport „Ekki endilega eitthvað sem ég þarf að upplifa aftur“ Handbolti „Mér býður við þessu, satt best að segja“ Enski boltinn Laufey Lín hjálpaði Alysu Liu að vinna gullið Sport Drukkin í útsendingu og baðst afsökunar Sport „Eins og hann búist ekki við skotum sem er skrítið fyrir markvörð“ Fótbolti Kominn með nóg af flakkinu Íslenski boltinn „Þegar ég lít til baka veit ég ekki hvað ég var að hugsa“ Enski boltinn „Engar áhyggjur af framtíð liðsins“ Íslenski boltinn Hákon tekinn af velli í hálfleik í tapleik Fótbolti Fleiri fréttir „Ekki endilega eitthvað sem ég þarf að upplifa aftur“ Uppgjör: Haukar - FH 25-32| Haukar létu valta yfir sig á heimavelli Mosfellingar enduðu taphrinuna og Haukakonur unnu fyrir norðan Sigurganga stráka Guðjóns Vals heldur áfram en tap hjá Bjarka Díana í lokaprófi og missir af mikilvægum landsleik Ómar Ingi markahæstur þegar Magdeburg tryggði sig inn í átta liða úrslit Elín Klara lék best allra á vellinum Viktor Gísli fagnaði sigri og sæti í átta liða úrslitunum Sara Dögg tekin inn í hópinn fyrir næstu leiki í undankeppni EM Reynir markahæstur í Íslendingaslagnum Fjórða tapið í röð hjá lærisveinum Arnórs Fyrsta tap Gísla og Ómars kom gegn stórveldinu Landin sá til þess að Ísak og Guðmundur fengju silfur Ellefu mörk Viggós dugðu skammt Átta íslensk mörk í fyrsta sigrinum Haukur með næstflest í sigri KA/Þór klemmdi Selfoss við botninn Stiven í ham í Portúgal Uppgjörið: Valur - KA 36-31 | Valur náði fljótt forystu sem hann lét aldrei af hendi Uppgjörið: ÍR - Valur 18-19 | Áfram á toppnum eftir æsispennu Stjarnan hætti að skora á versta tíma Þorsteinn Leó öflugur í sigri Porto Haukar á toppinn og varpa pressunni yfir á Val Gífurlega þýðingarmikill sigur HK gegn Þór Elín Klara með sex mörk í mikilvægum sigri Meistararnir lögðu botnliðið í spennuþrungnum leik Einar Bragi öflugur í mikilvægum sigri í toppslag Eyjamenn stöðvuðu áhlaup Aftureldingar FH sneri leiknum og sigraði Selfoss Reynir markahæstur hjá Melsungen og Gísli gerði mest fyrir Magdeburg Sjá meira