Hanna Guðrún: Heiður að vera varaskeifa fyrir gömlu konuna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. nóvember 2011 09:00 Hanna Guðrún Stefánsdóttir. Mynd/Anton
Hanna Guðrún Stefánsdóttir er orðin varafyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í handbolta eftir að Hrafnhildur Skúladóttir var hækkuð í tign þar sem að fyrirliðinn Rakel Dögg Bragadóttir datt út vegna meiðsla. Stelpurnar okkar mæta Tékklandi í vináttulandsleik í Vodafone-höllinni á Hlíðarenda klukkan 19.30 í kvöld. Rakel Dögg Bragadóttir missir af HM í Brasilíu eftir að hún sleit krossband rétt fyrir mót. Hanna segir að liðið muni vinna sigur út úr því áfalli. „Það kemur náttúrulega bara maður í manns stað en það er rosalegur missir að missa Rakel. Hún er mikilvægur póstur í liðinu, fyrirliði og mjög mikilvæg í vörn. Við þjöppum okkur bara ennþá meira saman og reynum að vinna sem best út úr þessu," sagði Hanna en Ísland er á leiðinni á HM kvenna í fyrsta sinn. „Þetta er búið að vera draumur margra í mörg ár. Við ætlum að njóta okkar, spila okkar besta bolta og gera okkar besta. Það er rosalegur sigur fyrir okkur og góður árangur að komast fyrst inn á EM og svo strax inn á næsta stórmót," segir Hanna en framundan er langt ferðlag til Brasilíu og leikir á fjarlægum stað. „Við erum bara einbeita okkur að handboltanum og að okkar leik. Við erum búnar að æfa vel og svo er alltaf gott að hafa smá stress í maganum. Það verður samt enginn leikur léttur í þessum riðli," sagði Hanna. „Þessir leikir við Tékka verða mjög góð æfing fyrir okkur en það væri líka rosalega gott að fá tvo sigra. Þær eru mjög góðar en við erum að æfa marga hluti og ætlum að prufa nýja hluti. Við munum reyna að spila okkur saman fyrir mótið í þessum leikjum," sagði Hanna en breytir það einhverju fyrir hana að vera orðin varafyrirliði. „Þetta breytir mér ekkert sem leikmanni en það er bara heiður að fá að vera varafyrirliði og varaskeifa fyrir gömlu konuna," sagði Hanna.
Mest lesið „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ Íslenski boltinn Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Enski boltinn „Allir orðnir vinir í skóginum“ Íslenski boltinn Ronaldo segir að stuðningsmennirnir eigi að fá lífstíðarbann Fótbolti Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Enski boltinn „Draumur að fá að spila á landsliðsvellinum“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Fylkir - HK 2-2 | Þrjú rauð spjöld og Fylkir í úrslit Íslenski boltinn „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ Íslenski boltinn Áttaði sig ekki á því að hafa unnið mótið Sport Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Körfubolti Fleiri fréttir Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Sjá meira