Kiel enn ósigrað eftir magnaðan lokasprett gegn Magdeburg Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. nóvember 2011 20:44 Andreas Palicka átti frábæra innkomu í lið Kiel í kvöld. Nordic Photos / Bongarts
Kiel vann í kvöld sjö marka sigur á Magdeburg eftir hreinn ótrúlegan lokasprett í leik liðanna í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld, 33-26. Staðan í hálfleik var 13-12, heimamönnum í Magdeburg í vil og héldu þeir undirtökunum í leiknum framan af í seinni hálfleik. Staðan var orðin 22-20 og aðeins tólf mínútur til leiksloka. Þá var Thierry Omeyer tekinn af velli í marki Kiel en hann hafði varla varið skot allan seinni hálfleikinn. Inn á kom Svíinn Andreas Palicka sem átti stórleik og varði átta af þeim tólf skotum sem hann fékk á sig. Kiel, með Christian Zeitz fremstan í flokki, gekk á lagið, skoraði sex mörk í röð og rúllaði einfaldlega yfir Magdeburg á lokamínútum leiksins. Zeitz skoraði alls níu mörk í leiknum og Filip Jicha sjö. Hjá Magdeburg var Fabian van Olphen markahæstur með sex mörk. Alfreð Gíslason er þjálfari Kiel og hefur náð glæsilegum árangri með liðið á tímabilinu. Liðið er enn með fullt hús eftir fjórtán leiki og trónir vitaskuld á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar. Aron Pálmarsson átti flottan leik fyrir Kiel í kvöld. Hann skoraði tvö mörk, lagði upp mörg til viðbótar og nýtti þær mínútur sem hann fékk mjög vel. Björgvin Páll Gústavsson lék síðustu átta mínútur leiksins í Magdeburg en náði ekki að verja skot á þeim tíma. Magdeburg er í sjöunda sæti deildarinnar með fjórtán stig. Kiel er nú með sjö stiga forystu á Füchse Berlin sem kom sér í annað sæti deildarinnar með sigri á Rhein-Neckar Löwen í kvöld.
Mest lesið „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ Íslenski boltinn Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Enski boltinn „Allir orðnir vinir í skóginum“ Íslenski boltinn Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Enski boltinn Ronaldo segir að stuðningsmennirnir eigi að fá lífstíðarbann Fótbolti „Draumur að fá að spila á landsliðsvellinum“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Fylkir - HK 2-2 | Þrjú rauð spjöld og Fylkir í úrslit Íslenski boltinn Áttaði sig ekki á því að hafa unnið mótið Sport Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Körfubolti „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Sjá meira