Handbolti

Kiel vann nauman sigur á Füchse Berlin

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Alfreð Gíslason er að gera frábæra hluti með Kiel.
Alfreð Gíslason er að gera frábæra hluti með Kiel. Nordic Photos / Bongarts
Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Kiel eru enn með fullt hús stiga í þýsku úrvalsdeildinni eftir eins marks sigur á Füchse Berlin í dag, 33-32.

Kiel var skrefi framar lengst af í leiknum en staðan í hálfleik var jöfn, 17-17, eftir að heimamenn náðu að skora fjögur af síðustu fimm mörkum fyrri hálfleiksins.

Aftur náðu gestirnir frá Kiel undirtökunum í seinni hálfleik en aftur dró saman með liðunum í seinni hálfleik. Munurinn var fimm mörk, 33-28, þegar sex mínútur voru til leiksloka en Füchse Berlin náði að skora fjögur mörk í röð og minnka muninn í eitt mark.

Silvio Heinevetter, markvörður Füchse Berlin, varði svo frá Filip Jicha þegar sex sekúndur voru til leiksloka og þrumaði boltanum fram. Boltinn hafnaði þó utan vallar og leiktíminn rann út.

Heinevetter var gjörsamlega sturlaður í leikslok þar sem hann vildi meina að Füchse Berlin hefði átt að fá aukakast á lokasekúndum leiksins. En dómararnir stóðu á sínu og Heinevetter gekk öskureiður af velli.

Alexander Petersson skoraði tvö mörk í leiknum fyrir Füchse Berlin en Aron Pálmarsson skoraði ekki í dag fyrir Kiel. Daniel Narcisse var gríðarlega öflugur hjá gestunum og skoraði níu mörk en hjá heimamönnum var Iker Romero markahæstur með átta mörk.

Kiel er því á toppnum með 20 stig en Füchse Berlin er nú í fimmta sætinu með þrettán stig. Dagur og félagar eiga þó leik til góða.

Þá vann Lemgo sigur á Grosswallstadt, 19-18. Sverre Jakobsson spilaði í vörn Grosswallstadt í leiknum.

Hannover-Burgdorf vann góðan sigur á Melsungen á útivelli, 36-31. Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði sex mörk í leiknum, Vignir Svavarsson þrjú en Hannes Jón Jónsson ekkert.

Hannover-Burgdorf komst upp í sex stig með sigrinum og er í fjórtánda sæti deildarinnar. Grosswallstadt er líka með sex stig en í þrettánda sæti.

Í þýsku B-deildinni vann Essen sigur á Bittenfeld, 30-27. Arnór Gunnarsson skoraði þrjú mörk fyrir Bittenfeld og Árni Sigtryggsson eitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×