HM 2011: Skýr markmið hjá íslenska liðinu Sigurður Elvar Þórólfsson í Santos skrifar 2. desember 2011 08:00 Ágúst Þór Jóhannsson, landsliðsþjálfari Íslands, leggur ríka áherslu á að Ísland spili góðan varnarleik á HM í Brasilíu. Hér æfa Harpa Sif Eyjólfsdóttir og félagar hennar varnarleikinn á æfingu í gær. Mynd/Pjetur
Kvennalandsliðið í handbolta skrifar nýjan kafla í íþróttasögu Íslands á morgun þegar liðið leikur sinn fyrsta leik á heimsmeistaramótinu í Brasilíu. Aldrei áður hefur Ísland náð í úrslitakeppni HM í kvennaflokki. Íslenska liðið kom til Santos í Brasilíu á miðvikudagsmorgun eftir langt ferðalag frá London. Liðið hefur æft tvívegis í keppnishöllinni í Santos Arena þar sem A-riðill mótsins fer fram. Ágúst Jóhannsson, þjálfari íslenska liðsins, var með öfluga 100 mínútna æfingu í gær þar sem mesta áherslan var lögð á varnarleikinn. Þjálfarinn er með skýr markmið, að liðið komist í 16 liða úrslit. Til þess þarf margt að ganga upp og Ísland þarf að enda í einu af fjórum efstu sætunum. Svartfjallaland og Noregur eru fyrirfram talin með langsterkustu liðin í þessum riðli. Ísland ætti hins vegar að eiga góða möguleika gegn Afríkumeistaraliði Angóla, Kína og jafnvel Þjóðverjum. Raunhæft að komast áfram„Það er raunhæft markmið að komast upp úr riðlinum en til þess þurfum við að eiga góða leiki. Þetta eru allt sterkar þjóðir. Við erum búnir að skoða myndbönd frá bæði Angóla og Kína. Það verða hörkuleikir. Við þurfum að hitta á góða daga, halda mistökunum í lágmarki og leika þéttan og góðan varnarleik," sagði Ágúst, en hann hefur óskað eftir því að leikmenn Íslands tileinki sér meiri hraða í leik sínum. „Hitinn hérna í Brasilíu er gríðarlega mikill og við verðum að sjá hversu mikið álag við þolum. Við sjáum til hvað gerist." Þjálfarinn er ekki í vafa um að væntingar hans til liðsins séu raunhæfar. Ísland lék í úrslitum Evrópumeistaramótsins í Danmörku fyrir ári og það er að mati þjálfarans góð þróun. „Það yrði enginn heimsendir ef við næðum ekki markmiðum okkar. En kröfurnar eru raunhæfar og við stefnum á að komast áfram. Það er góð þróun í handboltanum heima á Íslandi og sérstaklega eftir að fleiri leikmenn fóru til liða erlendis. Það lyftir gæðunum á landsliðinu. Ég vona að við náum betri árangri á þessu stórmóti en því síðasta," sagði Ágúst, en Ísland tapaði öllum þremur leikjum sínum í riðlakeppninni á EM í Danmörku. "Ætlum okkur að vinna leik“Hrafnhildur Skúladóttir hefur leikið í um 14 ár með íslenska landsliðinu en hún er aldursforsetinn í liðinu. Hrafnhildur segir að það sé stórafrek fyrir Ísland að eiga lið á heimsmeistaramóti. „Ég er búin að bíða eftir þessu lengi. Það hafa orðið framfarir í handboltanum á Íslandi. Hraðinn er meiri en áður og það hentar okkur vel," sagði Hrafnhildur eftir æfingu Íslands í Santos Arena í gær. Svitinn lak af leikmönnum Íslands strax frá fyrstu mínútu æfingarinnar. Enda ekki skrítið, lofthitinn um 28 gráður og mikill raki í loftinu. „Það eina sem vantar í þessa keppnishöll er loftkælingin. Það er aðeins erfitt að anda eftir nokkra spretti við þessar aðstæður en við verðum fljótar að aðlagast þessu,“ sagði fyrirliðinn Hrafnhildur Skúladóttir eftir æfinguna í gær. Ísland lék einn æfingaleik við enska landsliðið á meðan beðið var eftir fluginu til Brasilíu og það virkaði vel á liðið að mati Hrafnhildar. „Við vorum reyndar nokkrar með fætur eins og bjúgu eftir 11 tíma flug til Brasilíu. Það tekur aðeins á. Við vorum vel undirbúnar og fórum í sérstakan fatnað í fluginu sem kallast „recovery" fatnaður," bætti fyrirliðinn við. Hrafnhildur er í hópi tíu leikmanna sem eru í liðinu sem léku einnig á EM í Danmörku. Hún segir að sú reynsla eigi eflaust eftir að nýtast vel. „Okkur langar til þess að vinna leik á stórmóti, það er mjög mikilvægt og við hlökkum mikið til þess að láta það takast," sagði Hrafnhildur.
Mest lesið Staðfestir brottför frá Liverpool Enski boltinn Íslensk hjón fóru holu í höggi á sama hring Golf Freyr á toppnum: „Ég elska Bergen“ Fótbolti „Loksins fæ ég að hafa hann í mínu liði“ Körfubolti Pirraður Hamilton biðst ekki afsökunar Formúla 1 Kane fékk loksins að syngja sigurlagið Fótbolti Heimamaður setti met í fjölmennasta utanvegahlaupi Íslands Sport Sendu Houston enn á ný í háttinn Körfubolti Piastri fagnaði þriðja sigrinum í röð Formúla 1 Dagskráin í dag: Oddaleikur og þrír leikir í Bestu deild karla Sport Fleiri fréttir Sólveig Lára hætt með ÍR Gríðarlega spenna á toppnum en stórleikur Viggós dugði ekki til „Borgar þrjátíu en færð hundrað prósent“ Kolstad rétti úr kútnum og komst í úrslit Lærisveinar Arnórs laumuðu sér upp fyrir lið Guðmundar Þórir ráðinn til HSÍ Mætir bróður sínum í úrslitum: „Staðfestur titill á okkar heimili“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 33-29 | Afturelding send í sumarfrí og Valsmenn leika til úrslita Fram á lífi eftir sigur gegn Haukum Stjarnan áfram í Olís deildinni Íslandsmeistararnir örugglega í úrslit Haukur meistari í Rúmeníu „Verður svakalegur leikur“ Gísli og Ómar drógust gegn meisturunum Sjáðu sigurmark Gísla gegn Veszprém Janus Daði öflugur þegar Pick Szeged féll naumlega úr keppni Viggó og Andri Már frábærir í sigrum sinna liða Gísli Þorgeir skaut Magdeburg áfram Orri sá farmiðann til Kölnar enda í tætaranum Gagnrýnir HSÍ harðlega: „Enginn metnaður til að gera betur“ Valur í kjörstöðu gegn ÍR Góður leikur Þorsteins Leó dugði ekki í Frakklandi Uppgjörið: Haukar - Fram 25-24 | Orkufrekur eltingaleikur „Ég er smá í móðu“ Haraldur tekur við Fram af Rakel „Treysti bara á að allt þetta fólk mæti“ Uppgjörið: Afturelding - Valur 29-26 | Einvígið ræðst í oddaleik Guðjón Valur missir fyrirliðann sinn „Við ætlum að klára að Íslandsmeistaratitilinn“ Uppgjörið: Fram - FH 34-33 | Fram í úrslit eftir tvíframlengdan leik Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Afturelding 33-29 | Afturelding send í sumarfrí og Valsmenn leika til úrslita