HM 2011: Stelpurnar okkar klárar í slaginn gegn Rússum í Barueri Sigurður Elvar Þórólfsson í Barueri skrifar 11. desember 2011 10:00 Stella Sigurðardóttir í leiknum gegn Kína. Mynd/Pjetur
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta flutti sig um set í gær á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Brasilíu. Hópurinn yfirgaf strandborgina Santos og hefur nú komið sér fyrir í Barueri sem er rétt fyrir utan stórborgina Sao Paulo. Í Barueri eru um 300.000 íbúar, en til samanburðar eru um 13-14 milljónir íbúar í Sao Paulo. Ísland mætir heimsmeistaraliði Rússlands í dag, í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins. Íslenska liðið tók létta æfingu á ströndinni í Santos eldsnemma í morgun áður en haldið var í ferðalagið til Barueri sem tók um 3 tíma. Leikmenn Íslands eru líkt og aðrir leikmenn á þessu heimsmeistaramóti aðeins lúnir eftir 5 leiki á 7 dögum. Stella Sigurðardóttir, einn af lykilmönnum íslenska landsliðsins, er sannfærð um að Ísland geti strítt heimsmeistaraliði Rússa með góðri markvörslu og vörn. „Mér finnst við hafa tekið miklum framförum frá því við lékum við þær í Danmörku í úrslitakeppni EM. Sá leikur fór 30-21. Þá var reynsluleysið mun meira en í dag hjá liðinu. Við höfum lært mjög mikið og hver leikur á þessu heimsmeistaramóti fer í reynslubankann. Ef við náum upp góðri vörn og markvörslu þá getur allt gerst," sagði Stella en hún er líkt og aðrir leikmenn Íslands frekar lúin eftir erfiða törn. „Ég fann það vel í leiknum gegn Kína að ég var þreytt. Þetta er eitthvað sem við þurfum að læra af, það eru öll liðin í þessari stöðu og maður verður bara að gleyma álaginu og þreytunni á meðan þetta stendur yfir. Mér finnst tíminn hafa liðið ótrúlega hratt á þessu móti og við verðum bara að rífa okkur í gang gegn Rússum," sagði Stella Sigurðardóttir.
Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Uppgjörið: RFS - Vestri 4-1 | Þurfa kraftaverk í Reykjavík Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira