Guðjón Valur skoraði sjö mörk Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. apríl 2011 17:55 Nordic Photos / Bongarts
Guðjón Valur Sigurðsson stimplaði sig inn í lið Rhein-Neckar Löwen í dag með því að skora sjö mörk er lið hans, Rhein-Neckar Löwen, vann öruggan sigur á Melsungen á útivelli, 37-28. Guðjón Valur hefur lítið fengið að spila að undanförnu hjá Guðmundi Guðmundssyni, þjálfara liðsins, þar sem að þýski landsliðsmaðurinn Uwe Gensheimer hefur verið að spila vel í sömu stöðu. Hann fékk þó tækifærið í dag og nýtti það vel. Róbert Gunnarsson spilaði einnig í dag og skoraði þrjú mörk. Ólafur Stefánsson skoraði tvö mörk fyrir Löwen. Þá vann Hannover-Burgdorf mikilvægan sigur á Balingen, 26-25, á heiamvelli. Balingen var skrefi á undan lengst af í leiknum en Hannover-Burgdorf skoraði síðustu tvö mörk leiksins. Sigurbergur Sveinsson skoraði þrjú mörk í leiknum, Hannes Jón Jónsson eitt en þeir Vignir Svavarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson ekkert. Vignir fékk þó þrjár brottvísanir í leiknum og þar með rautt. Hannover-Burgdorf er nú með þrettán stig í fimmtánda sæti deildarinnar og styrkti því stöðu sína verulega í fallbaráttu deildarinnar í dag. Rhein-Neckar Löwen er í þriðja sætinu með 41 stig. Grosswallstadt komst í dag áfram í undanúrslit EHF-bikarkeppninnar með tveggja marka sigri á franska liðinu St. Raphael á heimavelli, 25-23. Grosswallstadt tapaði fyrri leiknum á útivelli með eins marks mun en Sverre Jakobsson leikur með liðinu. Sænska liðið Drott, sem Gunnar Steinn Jónsson leikur með, féll hins vegar úr leik í fjórðungsúrslitum Evrópukeppni bikarhafa í dag. Liðið vann Tremblay en France á heimavelli, 25-22, en náði ekki að vinna upp fimm marka tap í fyrri leik liðanna í Frakklandi.
Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira