Frábær sigur hjá Füchse Berlin Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. október 2011 17:05 Alexander Petersson í leik með Füchse Berlin. Nordic Photos / Bongarts
Lærisveinar Dags Sigurðssonar hjá Füchse Berlin unnu í dag góðan sigur á pólska liðinu Kielce eftir að hafa verið lengst af undir í leik liðanna í Meistaradeild Evrópu. Füchse Berlin vann að lokum þriggja marka sigur, 30-27, eftir að hafa verið marki undir í hálfleik. Alexander Petersson lék á hægri vængnum hjá Füchse Berlin og Þórir Ólafsson í hægra horninu hjá Kielce. Alexander skoraði þrjú mörk í leiknum og Þórir eitt. Pólverjarnir byrjuðu betur í leiknum og náðu forystunni snemma. Leikmenn Füchse Berlin náðu þó að berja frá sér og jafna leikinn í stöðunni 14-14. Kielce skoraði þó síðasta mark fyrri hálfleiks og því staðan 15-14, gestunum í vil, þegar seinni hálfleikur hófst. Jafnræði var með liðunum eftir það en Kielce þó ofast skrefi framar. Daninn Torsten Laen náði að jafna metin þegar um fjórar mínútur voru til leiksloka og staðan 27-27. Laen kom svo Berlínarbúum yfir með marki úr hraðaupphlaupi eftir stoðsendingu Alexanders stuttu síðar en tékkneski markvörðurinn Petr Stochl átti einnig mikinn þátt í sigrinum þar sem hann hreinlega lokaði marki Füchse Berlin á lokakaflanum. Heimamenn gengu á lagið og þegar uppi var staðið skoruðu þeir síðustu fjögur mörk leiksins og tryggðu sér þar með þriggja marka sigur sem fyrr segir. Füchse Berlin gerði í fyrsta leik jafntefli við rússneska liðið Chekhovskie Medvedi á útivelli og er liðið því enn ósigrað á sínu fyrsta tímabili í Meistaradeildinni.
Mest lesið Skaðbrenndur Hemmi fer ekki aftur í eldhúsið Íslenski boltinn Albert lenti í slysi með sleikjó og braut framtönn Íslenski boltinn Sölvi Geir: Fengum hann til félagsins út af þessu Íslenski boltinn FH spilaði í blárri Henson treyju: „Við vildum ekki fara bara í einhvern lit“ Íslenski boltinn Sundæfingar Andreu skiluðu silfurverðlaunum á breska meistaramótinu Sport Uppgjörið: FH - Valur 31-25 | FH jafnaði einvígið í Krikanum Handbolti Rúnar og Logi áfram í Njarðvík næstu tvö árin Körfubolti „Aldrei verið sópað áður og ég ætlaði ekki að byrja á því í kvöld“ Sport Breiðablik - Þór Ak. 4-0 | Sóknarleikur Blika vaknaði með látum Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Undanúrslit Meistaradeildarinnar hefjast Sport Fleiri fréttir Uppgjörið: FH - Valur 31-25 | FH jafnaði einvígið í Krikanum Stórsigur Stjörnunnar knúði fram oddaleik Magdeburg aftur á sigurbraut eftir erfiða bikarhelgi Haukar fá enn frekari liðsstyrk frá HK Elvar og félagar luku tímabilinu með sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-23| Haukar tryggðu sér oddaleik í Eyjum Viktor Gísli áfram í stuði Uppgjörið: Valur - FH 37-33 | Umdeildur vendipunktur en Valsmenn yfir „Einvígið fer ekki á einum manni“ „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Reynir markahæstur í þungu tapi „Langt síðan að við vorum með svona marga uppalda“ ÍR segir miðil dreifa lygasögu um leikmenn Úrslitaeinvígið hefst í kvöld: „Verið mikill rússíbani“ „Þetta einvígi mun ráðast á þeim“ Einar Bragi þurfti að sætta sig við tap eftir tvær framlengingar Hetjuleg frammistaða Hauks dugði ekki til sigurs Berlín batt enda á sigurgöngu lærisveina Guðjóns Vals Grótta færist nær úrvalsdeild en fall blasir við Stjörnunni Óttast hraða Vals mest en býst við frábæru einvígi Uppgjörið: Valur - Fram 31-27 | Kústarnir sóttir í hálfleik Tvíframlengt í spennutrylli í Eyjum Anton og Jónas dæma hjá Orra í Meistaradeild Evrópu Hituðu upp fyrir úrslitaeinvígið á bensínstöð Grétar lætur staðar numið í Skógarselinu Rændir í miðju lyfjaprófi Stjörnukonur jöfnuðu metin Ómar Ingi klikkaði í vítakeppni og Magdeburg úr leik í bikarnum Uppgjör: Haukar-ÍBV 28-29 | Birna Berg mögnuð og Eyjakonur jöfnuðu Valskonur einum sigri frá úrslitaeinvíginu eftir stórsigur Sjá meira