Úrvalsnámsmaður rekinn úr landi vegna aldurs 26. september 2011 20:00
Kanadískur íslenskunemi við Háskóla Íslands yfirgaf landið í dag að kröfu útlendingastofnunar. Hann er slíkur yfirburðanámsmaður í íslensku að hann er nú á öðru ári í Háskólanum, aðeins sautján ára gamall, en fær ekki að snúa aftur fyrr en hann hefur náð átján ára aldri. Jordan Chark vakti fyrst athygli þegar rætt var við hann í Íslandi í dag í vor. Þá hafði hann kennt sjálfum sér íslensku á þremur árum, en hann hefur enga sérstaka tengingu við landið. Þá hafði hann aðeins einu sinni komið til landsins, en þjóðin vakti slíka hrifningu hans að hann kenndi sjálfum sér tungumálið á þremur árum og óskaði eftir íslenskum pennavinum með því að setja myndband af sjálfum sér á netið. Jordan, sem er einungis sautján ára gamall komst svo inn í íslenskunám við Háskóla Íslands og flutti því til landsins fyrir mánuði síðan en strax í byrjun annar var honum tilkynnt að hann fengi allt fyrsta árið metið og mætti strax hefja nám á öðru ári, svo flinkur var hann í íslensku. Hann fékk jafnframt herbergi í stúdentagörðunum í Gamla Garði. Fyrir stuttu tilkynnti Útlendingastofnun honum hins vegar að hann mætti ekki vera hérna á Íslandi og Jordan var því beðinn um að pakka saman og halda aftur til Kanada. Í samtali við fréttastofu segir forstjóri útlendingastofnunar reglurnar vera skýrar. Þeim sem eru ekki orðnir átján ára verður ekki veitt dvalarleyfi á Íslandi en Jordan verður átján ára nú í desember. Því hafi hann verið beðinn um að yfirgefa landið en málið var jafnframt tilkynnt barnaverndarnefnd. Útlendingastofnun hafi enga heimild til að veita undanþágu frá reglunum. Jordan segir hins vega háskólasamfélagið hafa tekið vel á móti sér og hyggst því koma aftur þegar hann verður orðinn átján ára. Jordan kvaddi því vini sína í háskólanum í dag og flaug heim til Kanada þar sem hann þarf að bíða eftir því að verða nógu gamall. Vinir hans voru svo beygðir af harmi að þeir grétu.
Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Innlent „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Innlent Fleiri fréttir Rýnt í flókna stöðu Icelandair Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur Reynsluboltinn í Hæstarétti hættur: „Þetta var komið gott“ Nýr meirihluti kynnir forgangslistann Keili formlega slitið Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykjavíkurflugvöll Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Hafa engar upplýsingar um Sindra Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans „Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ Fjárdráttur lögmanns hjá héraðssaksóknara Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Tilfinningaþrungin stund á Alþingi og nýr leik- og grunnskóli að rísa í Reykjavík Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Sjá meira