Arnór spilar áfram þrátt fyrir brjósklos í baki Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. nóvember 2011 10:45 Arnór Atlason þurfti á meðferð að halda hjá Elís Þór Rafnssyni sjúkraþjálfara eftir æfingu landsliðsins í gær. Mynd/Anton „
Ég læstist svona agalega í bakinu eftir þriggja mínútna leik í fyrsta leik okkar í Meistaradeildinni í haust. Eftir það fór ég í rannsóknir og greindist með brjósklos í baki,“ sagði Arnór Atlason, landsliðsmaður í handbolta, eftir landsliðsæfingu í gær. Liðið er nú að æfa saman þessa vikuna en Arnór hefur haldið ótrauður áfram að spila með liði sínu, AG Kaupmannahöfn, þrátt fyrir brjósklosið. „Ég hef oft verið stífur í bakinu og ég man fyrst eftir að hafa fundið fyrir því á Ólympíuleikunum í Peking. Líklega hef ég því verið með brjósklos í einhvern tíma. Síðan ég læstist í bakinu í haust hef ég átt í nokkrum erfiðleikum með bakið og þarf að passa mig sérstaklega.“ Hann segir mögulegt að sleppa við aðgerð með sjúkraþjálfun og styrkingaræfingum fyrir bakið. „Sérfræðingar segja að ég eigi að geta sloppið við aðgerð – það sé enn gott pláss fyrir hryggjarliðina. Ég þarf að vera duglegur að styrkja bakið og vonandi gengur þetta til baka sem fyrst.“ Hann segir að það sé samdóma álit þeirra lækna sem hann hefur leitað til að hann geti náð bata þótt hann spili áfram. „Það er mikið álag fram undan og ég þarf að vera klókur. Ég er þó í fínu formi og mun ekki láta þetta aftra mér. Við eigum mikilvæga leiki fram undan í Meistaradeildinni og ég stefni á að geta beitt mér af fullum krafti í þeim.“ Hann segir að greiningin hafi ekki dregið úr sér kjark. „Alls ekki. Mér hefur tekist að lifa með þessu í einhvern tíma og líkaminn er að öðru leyti vel á sig kominn. Ég hef ekki áhyggjur.“
Mest lesið „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ Íslenski boltinn Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Enski boltinn Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Enski boltinn „Allir orðnir vinir í skóginum“ Íslenski boltinn Ronaldo segir að stuðningsmennirnir eigi að fá lífstíðarbann Fótbolti Uppgjörið: Fylkir - HK 2-2 | Þrjú rauð spjöld og Fylkir í úrslit Íslenski boltinn Áttaði sig ekki á því að hafa unnið mótið Sport Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Körfubolti „Draumur að fá að spila á landsliðsvellinum“ Íslenski boltinn „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Sjá meira