HM kvenna 2011: Þórir og norsku stelpurnar í úrslitaleikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. desember 2011 23:00 Þórir Hergeirsson. Mynd/Pjetur
Norska kvennalandsliðið tryggði sér sæti í úrslitaleiknum á HM kvenna í handbolta eftir öruggan átta marka sigur á Spáni, 30-22, í undanúrslitaleiknum í kvöld. Þórir Hergeirsson er þar með búinn að koma norska liðinu í úrslitaleikinn á tveimur stórmótum í röð en norsku stelpurnar urðu Evrópumeistarar undir hans stjórn í fyrra. Noregur mætir Frakklandi í úrslitaleiknum en bæði eiga þau sameiginlegt að hafa tapað fyrir Rússum í úrslitaleikjum síðustu tveggja heimsmeistarakeppna, Frakkar árið 2009 og Norðmenn árið 2007. Norska liðið hefur nú unnið sjö leiki í röð eftir að hafa tapað fyrsta leiknum á HM í Brasilíu á móti Þýskalandi. Þórir er greinilega að koma með liðið upp á réttum tíma og þær eru til alls líklegar í úrslitaleiknum á móti Frökkum á sunnudaginn. Norsku stelpurnar byrjuðu mun betur, komust í 6-3 og voru 10-4 yfir þegar sextán mínútur voru liðnar. Spænsku stelpurnar gáfust ekki upp, unnu næstu fimm mínútur 5-0 og náðu að minnka muninn í eitt mark, 10-9. Það kostaði mikla orku hjá spænska liðinu að vinna upp forskotið og það kom vel í ljós á síðustu átta mínútum hálfleiksins. Norsku stelpurnar skoruðu sex síðustu mörk fyrri hálfleiks og voru 16-9 yfir í hálfleik. Norska liðið skoraði þrjú af fyrstu fjórum mörkum seinni hálfleiks og komst fyrir vikið átta mörkum yfir, 19-11. Spænsku stelpurnar náðu aldrei að ógna þeim eftir það og Noregur vann öruggan og sannfærandi sigur. Katrine Lunde Haraldsen átti frábæran leik í norska markinu og varði yfir 20 skot í leiknum. Norska vörnin og hraðaupphlaupin lögðu líka grunninn að frábærum sigri.
Mest lesið Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Fylkir - HK 2-2 | Þrjú rauð spjöld og Fylkir í úrslit Íslenski boltinn Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Enski boltinn Fleiri fréttir Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Sjá meira